HSS
HSS

Aðsent

Kallinn styður Kalla
Föstudagur 9. janúar 2004 kl. 10:38

Kallinn styður Kalla

KALLINN ÓSKAR Suðurnesjamönnum gleðilegs árs og þakkar fyrir allt liðið. Skemmtilegur tími framundan. Völvan komin með sína spá og þar er margt merkilegt að sjá, en hún spáir því að Varnarliðið fari innan tveggja ára. Kallinn mun fylgjast með því og um leið skorar hann aftur á þá sem hafa upplýsingar að senda á [email protected].

SUÐURNESJAMAÐURINN KALLI fær hrós ársins frá Kallinum. Hann hefur staðið sig frábærlega í Idol keppninni og Kallinn trúir því að hann sigri, enda strákurinn gríðarlega líflegur og góður söngvari. Kallinn óskar Grindvíkingum til hamingju með frábæran náunga!

REYKJANESBÆR hefur hækkað gjaldskrá sína og auðvitað er það helst barnafólkið sem hækkunin bitnar mest á. Leikskólagjöldin hækka um 20% og gjöldin fyrir tónlistarnámið hækka einnig. Kallinn spyr: Í hvað fara skattarnir okkar? Af hverju þarf að hækka þau gjöld sem koma fólkinu sem er að koma yfir sig þaki og hefja sín fyrstu skref út í lífið verst? Alveg furðulegt og þarfnast skýringa við.

EN JÁ – SPENNANDI tími framundan á Suðurnesjum. Kallinn hefur mikla trú á árinu sem er nýhafið og ef Kallinn væri spámaður myndi hann spá góðu ári! Nú þarf bara að nýta þá krafta sem hér eru til góðra verka.

SANDGERÐINGAR ERU að standa sig vel með Sigurð Val bæjarstjóra í fararbroddi. Þeir eru komnir að samningaborðinu í Landsbankanum um kaup á Miðneskvótanum. Sveitarfélög ætla að standa saman að kaupum á kvótanum og Kallinn vonar svo innilega að það takist að ná þessum tonnum á svæðið. Nú er bara að halda áfram og ekki láta Akurnesingana hirða allan kvótann í annað sinn. Kallinn leggur alla sína trú á Sigurð Val og félaga.

KALLINN biður lesendur Víkurfrétta um að senda sér ljóð á netfangið [email protected]. Kallinn hefur nefnilega mikinn áhuga á ljóðagerð og langar til að birta ljóð með þessum pistlum sínum. Hvar eru nú hinir snaggaralegu hagyrðingar á Suðurnesjum?

OG AÐEINS EITT að lokum: Hvað er að frétta af Sædýrasafninu?

GÓÐAR stundir!
Kveðja, [email protected]
Bílakjarninn
Bílakjarninn