Kallinn: Sædýrasafn, sameining og kvóti í Sandgerði

unninn í sveitarfélaginu. Kallinn vonar að þeim takist að ná til sín sem mestum kvóta og að hann haldist í sveitarfélaginu. Bankastofnanir landsins ættu að geta lánað sveitarfélögum fjármagn til kvótakaupa, alveg eins og þessar sömu stofnanir lána “kvótakóngunum" allt það fé sem þeir þarfnast og vilja.KALLINN hlakkar mikið til að mæta sem áhorfandi á gamaldags pólitískan kappræðufund þar sem frambjóðendur kynna stefnu síns flokks, bauna á hvern annan og svara síðan spurningum úr sal. Þannig
fundir heyra orðið sögunni til, en á slíkum fundum var oft mikið barist. Kallinn setti fram óskir þess efnis í síðasta pistli að fá svör frá Suðurnesjaframbjóðendum um það hvort þeir þyrðu að mætast á slíkum fundi. Svör eru að berast og mun Kallinn greina frá því hverjir þora í næsta pistli.
TIL AÐ KOMA málunum á hreyfingu skellir Kallinn fram þeirri hugmynd að slíkur fundur verði haldinn mánudagskvöldið 7. apríl nk. Það hljóta að vera fyrirtæki, einstaklingar eða félagasamtök þarna úti sem sjá hag sinn í því að halda slíkan fund.
OG ENN AÐ fundinum: Kallinn lýsir eftir ábendingum að fundarstjóra sem mun stýra þessum fundi. Ljóst er að það þarf kraftmikinn og röggsaman einstakling til að stýra slíkum fundi. Sendið ábendingar til kallsins á [email protected]. Framboðsfundur þar sem efstu Suðurnesjaframbjóðendur hvers stjórnmálaflokks kynna sín mál verður haldinn - sjáum til þess!
SÆDÝRASAFN Á SUÐURNES. Af hverju í ósköpunum er ekki reist Sædýrasafn hér á Suðurnesjum eins og var í Hafnarfirði á sínum tíma. Kallinum barst þessi spurning frá lesanda. Það var mikil upplifun fyrir mörg
börnin að fara í Sædýrasafnið og sjá dýrin sem fyrir augu bar, ljón, apa, ísbjörn og önnur dýr. Suðurnesjamenn hafa alla burði til að koma slíku safni upp á svæðinu og væri tilvalið að koma því upp nálægt Bláa Lóninu eða hreinlega fyrir innan Innri-Njarðvík. Þetta er mál sem þarf að ræða og Kallinn vill endilega fá póst frá áhugasömum um þessa frábæru hugmynd.
KALLINN ER alltaf að fá bréf og þakkar hann fyrir þau, enda oft um stórskemmtileg málefni að ræða. En eitt bréf var það sem hann hnaut við í síðustu viku og vakti Kallinn verulega til umhugsunar. Sendandi bréfsins lýsir yfir furðu sinni á háum launum sveitarstjóra í litlum sveitarfélögum þar sem hann fullyrðir að sveitarstjórar minni sveitarfélaganna séu með laun sem slagi hátt í milljón á mánuði, ásamt fríðindum. Kallinum finnst þetta náttúrulega óforsvaranlegt. Er rétt að sveitarstjórar í þessum minni sveitarfélögum séu með laun af
þessu tagi? Hvað gætu sveitarfélögin gert fyrir 12 milljónir króna á ári? Hvað finnst íbúunum um þetta? Væri þá ekki skárra ef þessi sveitarfélög væru lykill í bókhaldskerfi Reykjanesbæjar og bærinn gæti nýtt allar milljónirnar sem annars fara í yfirstjórn sveitarfélaganna í verkefni í viðkomandi sveitarfélögum?
KALLINN kannaði aðeins málið og samkvæmt fundargerð Gerðahrepps frá 15. janúar á þessu ári er áætlað að 32 milljónir fari í yfirstjórn hreppsins á árinu. Hvað væri hægt að gera fyrir þessar 32 milljónir í hreppnum? Og Kallinum svimar þegar hann hugsar um kostnað vegna yfirstjórnar Grindavíkur, Voga og Sandgerðis. Samanlagður kostnaður vegna yfirstjórnar þessara sveitarfélaga fer án efa vel yfir 100 milljónir. Það þarf ekki glöggan einstakling til að átta sig á því að slík sameining myndi margborga sig.
KALLINN hefur áður lýst því yfir að heiti sveitarfélaganna gæti haldið sér, því þau yrðu nokkurskonar úthverfi Reykjanesbæjar. Fyrir utan það hve styrkur sveitarfélagsins myndi aukast á landsvísu. Kallinn hvetur íbúa þessara sveitarfélaga til að hugsa um þessi mál. Og Kallinn treystir Árna Sigfússyni bæjarstjóra vel til þess að vinna fyrir öll Suðurnesin.
SAMEINUÐ STÖNDUM vér - sundruð föllum vér.
Kveðja, [email protected]