Kaffihúsaspjall og pönnukökur!
FAAS, Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og annarra með skylda sjúkdóma, hefur myndað tenglahóp, FAAS á Suðurnesjum, sem ætlar að standa að 3 fræðslufundum fram á vorið.
Fundirnir verða með kaffihúsabrag og pönnukökum í meðlæti, ásamt ýmiskonar fræðslu og gagnlegum upplýsingum. Fyrsti fundurinn verður haldinn nk. mánudag 11. febrúar kl. 16.30 í Selinu, Vallarbraut 4 (Njarðvík) Reykjanesbæ.
Fræðslan að þessu sinni er kynning á MEMAXI sem er skipulags- og samskiptakerfi fjölskyldna sem auðveldar fólki með minnisskerðingu að búa sjálfstætt.
Annar Kaffihúsafundurinn verður mánudaginn 11. mars kl. 16.30, fræðsluefni þess fundar verður kynning á MentisCura fyrirtækinu sem unnið hefur að þróun nýrrar aðferðar við að greina Alzheimersjúkdóminn.
Þriðji Kaffihúsafundurinn verður mánudaginn 15. apríl kl. 16.30, fræðsluefni þess fundar verður auglýst síðar.
Fundirnir verða nánar auglýstir þegar nær dregur.
Við í tenglahópi FAAS á Suðurnesjum horfum bjartsýnar til að fræðslu- og spjallfundir með Kaffihúsabrag séu komnir til að vera. Við vitum að allir/flestir vilja búa heima svo lengi sem unnt er, en til þess þarf oftast aðstoð fjölskyldu og/eða heilbrigðiskerfisins. Við teljum að þörfin fyrir almenna fræðslu um málefni Alzheimersjúklinga og annarra með skylda sjúkdóma sé til staðar. Við höfum alla möguleika á að hafa slíka umræðu/fræðslu hér á heimaslóðum, en til þess þurfum við áhuga, mætingu og aðstoð úr ýmsum áttum.
Fundirnir eru öllum opnir, við hvetjum félagsmenn og alla áhugasama að mæta og láta sig málið varða. FAAS félagið þarf á fleiri félagsmönnum að halda, aukinn liðsstyrkur ætti að auðvelda okkur að miðla þekkingu innan þessa stóra málaflokks.
Við þökkum þeim sem veitt hafa FAAS félaginu stuðning fram að þessu, en betur má ef duga skal.
Kær kveðja,
FAAS tengiliðir á Suðurnesjum
Aðalheiður Valgeirsdóttir, netpóstur [email protected]
Ingibjörg Magnúsdóttir, netpóstur [email protected]
Helen Antonsdóttir, netpóstur [email protected]
Eygló Antonsdóttir, netpóstur [email protected]
Margrét Jónsdóttir, netpóstur [email protected]
Sigríður Þórólfsdóttir, netpóstur [email protected]