Jólamarkaður Kompunnar fer í gang
Jólamarkaður Kompunnar verður haldinn fimmtudaginn 24. nóvember n.k. við Smiðjuvelli í Reykjanesbæ. Dagskrá verður frá kl. 17:30 til 18:30, en markaðurinn sjálfur verður opinn frá kl. 13:00 til 19:00. Hægt verður að kaupa piparkökur, kaffi og kakó á sanngjörnu verði, boðið verður upp á lifandi tónlist, Leikfélag Keflavíkur mun sýna brot úr Jólasögu Charles Dickens, uppboð verður á ýmsum merkilegum munum og fleira skemmtilegt gert.
Alls konar jóladót hefur verið að safnast upp hjá Kompunni og á fimmtudaginn verður það tekið fram og sett á sölu. Að sjálfsögðu verða hefðbundnar vörur Kompunnar einnig til sölu s.s. gömul húsgögn, bækur, ýmsar nytjavörur og margt fleira.
Kompan er nytjamarkaður sem er rekinn af Fjölsmiðjunni á Suðurnesjum og er opinn alla virka daga. Hægt er að fá nánari upplýsingar með því að hringja í Kompuna í síma 421-1111.