Aðsent

Járngerður í sumarfrí
Mánudagur 8. júní 2026 kl. 13:48

Járngerður í sumarfrí

Nú gerum við sumarhlé á upplýsingafundum Járngerðar.

Við viljum nota tækifærið og þakka ykkur öllum fyrir jákvæð viðbrögð, fyrir að gefa ykkur tíma til að hlusta og fylgjast með því sem hefur verið til umfjöllunar á upplýsingafundunum. Fundirnir hafa verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og samtal á krefjandi tímum fyrir samfélagið okkar.

Við þökkum líka öllum þeim sem gáfu sér tíma til að taka þátt í fundunum í viku hverri.  Framlag þessara aðila í umræðum og upplýsingagjöf á fundunum er ómetanlegt.

Við minnum jafnframt á að aðalfundur Járngerðar verður haldinn í Gjánni þriðjudaginn 16. júní kl. 17:30. Við hvetjum félagsmenn til að mæta og jafnframt þá sem hafa áhuga á starfi félagsins að ganga í Járngerði.

Bestu kveðjur,
stjórn Járngerðar.
Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26
Eignasalan
Eignasalan