Innri-Njarðvík – hverfið mitt
Ég er búinn að búa í Innri-Njarðvík í tæp fjögur ár. Á þessum tíma hefur hverfið stækkað hratt en á sama tíma hefur þjónustan við hverfið minnkað. Hér býr mikið af ungu fólki sem finnst hverfið sitt vera afskipt.
Í hverfinu eru þrír leikskólar og eru umsóknir barna fædd árið 2020 eða fyrr 74. Laus pláss í leikskóladeild Stapaskóla eru sautján og vantar því 57 leikskólapláss í dag. Núverandi meirihluti hefur sofið á verðinum og ekki hlustað á ábendingar frá starfsfólki Reykjanesbæjar um skort á leikskólaplássum. Lausn núverandi meirihlutans er að setja upp lausa leikskólaeiningu við leikskólann Holt sem myndi rúma tvær átján barna deildir. Ljóst er að dæmið gengur ekki upp og viðvarandi vandi verður enn til staðar.
Strætó gengur hér en fer ekki hringinn með tilheyrandi óþægindum fyrir ungmenni og íbúa sem þurfa oft að ganga langa vegalengd í gegnum hverfið í leit að næstu stoppustöð. Þrátt fyrir mikil mótmæli íbúa var gott sem engu breytt.
Núverandi meirihluti reyndi hljóðlega að koma inn öryggisvistun á aðalskipulag án samráðs við íbúa en var síðar tekið út úr endurskoðun á aðalskipulagi þegar íbúar tóku sig til og stofnuðu íbúasamtök hverfisins.
Ég segi nei við öryggisvistun í Innri-Njarðvík.
Ég átti samtal við aðila sem vilja opna veitingastað/kaffihús í hverfinu. Vöntun er á þjónustu- og verslunarhúsnæði sem kemur í veg fyrir þessar fyrirætlanir. Von mín er sú að við getum byggt hér upp eins konar kjarna þar sem verslun og þjónusta getur þrifist.
Þá vil ég efla nágrannavörslu í hverfinu. Hugmynd mín er að hér verði myndavélar við aðalgötur inn og út úr hverfinu. Slíkt hefur verið gert t.d. í nýju hverfi Mosfellsbæjar.
Ég vil bæta lýsingu við göngu- og hjólastíga og leggja rækt við gróður í hverfinu. Ég sé fyrir mér að eftir fjögur ár verði hverfið okkar gróðursælt með góðar samgöngur ásamt verslun og þjónustu. Heilsugæslan verði komin í gagnið.
Sundlaug og íþróttahús verði orðið starfrækt við Stapaskóla og biðlisti eftir leikskólavistun verði ekki lengur vandamál.
„Bætum lífsgæði íbúanna og grípum tækifærin.“
Steinþór Jón Gunnarsson Aspelund,
frambjóðandi í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ þann 26. febrúar.