Ingimundur Guðnason forseti bæjarstjórnar í Garði
Á síðasta fundi bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Garðs fór fram kjör forseta bæjarstjórnar. Samkvæmt reglum skal árlega fara fram kjör forseta í sveitarstjórnum landsins og skal það gert í júní ár hvert. Ingimundur Þ. Guðnason var kjörinn forseti bæjarstjórnar með 7 samhljóða atkvæðum. Einar Jón Pálsson var kjörinn varaforseti bæjarstjórnar með 7 samhljóða atkvæðum. Skrifari bæjarstjórnar var kjörinn Gísli Heiðarsson með 7 samhljóða atkvæðum.
Á sama fundi var Bragi Einarsson kjörinn formaður Ferða-og menningarnefndar í stað Gunnars Häslers. Jón Hjálmarsson var einnig kosinn í nefndina og Gísli Heiðassron til vara. Í Byggðasafnsnefnd var Leó Þorsteinsson kosinn í stað Gunnars Häslers og Gísli Heiðarsson til vara. Einnig var Rafn Guðbergsson kosinn í Heilbrigðisnefnd Suðurnesja í stað Huldu Matthíasdóttur og Guðrún S.Alfreðsdóttir til vara.