Iðnaðarráðherra og þingmenn Samfylkingar á opnum fundi á Ránni í kvöld
Þingflokkur Samfylkingarinnar leggur land undir fót í vikunni og heldur í fundaferð um allt land, þá þriðju á sjö mánuðum þar sem landsmönnum er boðið uppá milliliðalaust samtal um þau stóru og viðamiklu úrlausnarefni sem unnið er að.
Í kvöld þriðjudag 9. febrúar verður fundur haldinn í Reykjanesbæ á Ránni og hefst hann kl. 20:00. Framsögumenn eru Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, Oddný Harðardóttir og Róbert Marshall.
Fundaferðin ber yfirskriftina samstaða um endurreisn en það er eitt af stóru verkefnunum að vinna að samstöðu landsmanna um endurreisn og bætt og betra samfélag. Einn veigamesti þátturinn í endurreisn efnahagslífsins er að ná endum saman í ríkisfjármálum, án þess að ganga hart að velferðarkerfinu og þeim sem veikast standa og helst þurfa því á stuðningi þess að halda. Ríkisstjórnin hefur staðið fyrir ýmis konar úrræðum sem nýst hafa fjölskyldum og einstaklingum í kjölfar efnahagshrunsins, auk þess hefur verið unnið að stefnubreytingu á fjölmörgum sviðum svo sem í skattamálum, umhverfismálum og sjávarútvegsmálum. Þá hefur ríkisstjórnin unnið jafnt og þétt að mikilvægum verkefnum í atvinnumálum, verkefnum munu vega þungt í endurreisn Suðurnesja.
Allt þetta og margt fleira gefst Suðurnesjamönnum kostur á að ræða á opna fundinum í kvöld á Ránni og eru allir velkomnir.