Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Í hvers konar þjóðfélagi erum við?
Föstudagur 11. janúar 2013 kl. 10:53

Í hvers konar þjóðfélagi erum við?

Í hvers konar þjóðfélagi erum við?  Þetta sagði ég í Silfri Egils 28. október s.l. og sló í borðið. Við vorum að ræða skuldbreytt lán íbúðaeigenda, sem hafa hækkað um 400 milljarða frá hruni vegna verðtryggingarinnar. Verðtrygging var sett á með lögum og hana er sannarlega eins hægt að afnema með lögum. Á síðasta ári hækkuðu lánin um nálægt 60 milljarða og ennn hækka þau. Gengistryggð lán hafa verið dæmd ólögleg, en fjármálastofnanir komist upp með að framfylgja ekki lögunum. Munurinn í dag milli þeirra sem höfðu efni á að taka gengistryggt íbúðarlán að upphæð um 20 milljónir og þeirra sem höfðu ekki efni á því og tóku verðtryggt lán, er 10 milljón krónu hærri skuld hins síðar nefnda.

Verðrtryggð húsnæðislán eru að hrifsa heimilin af einstaklingum, þannig að talið er í dag, að um 60% heimila séu í raun eignir fjármálastofnana. Fram hefur komið að neikvæð staða þeirra sem eru á aldrinum 22-42 ára sé mínus 82 milljarðar króna. Þetta er sá hópur, sem á að knýja hagkerfið áfram með eftirspurn sinni á næstu árum og um leið að útvega ríkinu skatttekjur til að sjá hinum eldri farborða. Heil kynslóð er í þessum sporum.  Þessi kynslóð var skilin eftir meðan þeir sem höfðu aðstöðu og upplýsingar í ársbyrjun 2008 fóru að koma fé sínu undan. Fimm þúsund heimili eru í vanskilum hjá Íbúðarlánasjóði að upphæð frá hruni um sjó og hálfur milljarður. Lögvarin framkvæmd fjármálastofnana er ekki spurning um að greiða lán sem var tekið, heldur að mínu mati ólögmæt eignaupptaka á heimilum og eignum, þegar laun og húseignir lækkuðu í verði en lánin hækkuðu með stökkbreytingu vegna verðtryggingarinnar.

Stofnanir hafa þegar verið settar fram með ærnum kostnaði til að láta einstaklinga skrifa bónarbréf og fara aftur og aftur í viðtöl og standa í biðröðum í leit að úrlausn. Afskriftir fjármálastofnana hjá þeim “stóru” stanslaust í tæp fjögur ár, halda áfram á kostnað heimilanna, sem á að ganga að, meðan nokkuð er þar að hafa. Ekkert virðist breytast í þessari aðför. Heimilin eiga að borga nýjar skuldir með auknum álögum og úrráðaleysi, - Sparisjóðs Keflavíkur, Sjóvá, VBS, eignasafni Dróma og fleiri fyrirtaækja að upphæð um 100 milljarða.

Fundir eða heimsóknir

Í hvers konar þjóðfélagi erum við?  Þessari spurningu vildi ég gjarnan fá tækifæri til að svara á  fundum eða í heimsókn með Sjálfstæðismönnum fyrir prófkjör 26. janúar, þar sem vilji væri fyrir að slíkir  fundir væru haldnir og boðaðir af heimamönnum eða mér. Þar myndi ég einnig ræða fráleita gjaldtöku veiðigjaldsins, sem kemur mismunandi niður á útgerðir og ætti ekki að geta staðist gagnvart stjórnarskrá að mínu mati og einnig sóknarfæri okkar í landbúnaði. Ef áhugi væri fyrir þessu bið ég um að haft sé samband við mig í tölvupósti, hgholt @simnet.is  eða í síma 897-8961. Með bestu áramótakveðjum til þeirra sem þetta lesa.

Halldór Gunnarsson, Holti.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024