Í Garði er gott að búa
– Brynja Kristjánsdóttir skrifar
Laugardaginn 22. mars nk. verður prófkjör haldið hjá D-lista sjálfstæðimanna og óháðra í Garði.
Ég hef setið í bæjarstjórn Garðs sl. 8 ár og verið formaður bæjarráðs í 4 ár af þeim tíma, setið í Fjölskyldu og velferðanefnd í Landakaupanefnd, og nú í stjórn Kölku.
Mínir helstu málaflokkar sem ég vil vinna að eru fjölskyldu- og skólamál, aldraðir, fatlaðir og umhverfið. Allt málaflokkar sem snúa beint að íbúum Garðs og hagsmunum þeirra.
Fjölskyldan
Fjölskyldan er sá hornsteinn sem samfélagið byggir á og mikilvægt að hlúa vel að þeim þáttum er að henni snúa. Góð þjónusta, lág þjónustugjöld og lágir fasteignaskattar er staðreynd í okkar bæjarfélagi. Með hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins næstu árin mun ég beita mér fyrir því að útsvar verði lækkað einnig.
Íþróttir og tómstundir barna og unglinga eru góðar og framboðið stöðugt að aukast. Ég vil beita mér fyrir því á næsta kjörtímabili að við verðum með hvatagreiðslur til greiðslu á hluta þeirra gjalda sem verða til við ástundun íþrótta. Tilgangur hvatagreiðslna er til að jafna tækifæri barna og ungmenna til að stunda íþróttir og tómstundastarf.
Það eru forréttindi að fá að ala upp börn í fámennu og fallegu umhverfi eins og Garðurinn er þar sem fjölskyldan getur notið góðrar þjónustu, lágra gjalda og í nálægð við náttúruna .
Skólarnir
Skólarnir eru þau verkefni sem endalaust má bæta og gera betur til að ná sem bestum árangri.
Í stefnuskrá okkar Dlistans fyrir síðustu kosningar var á áætlun að endurskoða skólastefnuna og að innra starf skólans verði endurskoðað. Þetta hefur nú þegar verið gert og með nýrri skólastefnu sem
verið er að vinna að og tilbúin verður fljótlega þar sem íbúar, nemendur og starfsmenn skólans komu að vinnunni ásamt stýrihóp og verkefnastjóra.
Ég bind miklar vonir við að sú vinna sem framundan er með markvissri aðgerðaráætlun muni skapa enn betra og árangursríkara skólastarf. Útivistarsvæði skólans er áætlað að laga á árinu og mun ég vinna að því að sú framkvæmd fari í gang í sumar.
Við búum hér með frábæran leikskóla þar sem leikskólagjöld og fæðisgjöld er með þeim lægstu sem völ er á. Starfið er allt til fyrirmyndar og nú er ætlunin að stækka útivistarsvæði ð á þessu ári fyrir börnin þar sem náttúran fær að njóta sín sem mest.Nauðsynlegt er að starfsfólk og leikskólabörnin komi að hugmyndavinnunni við útfærslu leiksvæðisins.
Tónlistarskólinn er til fyrirmyndar með góðri tónlistarkennslu og gjaldskrá sem er lægri en víðast annars staðar. Húsnæði skólans er alls ekki viðunandi og er á áætlun að gera breytingar þar um og hugsa til framtíðar í þeim efnum .
Aldraðir
Samfélagsleg ábyrgð okkar er að öldruðum séu veittar bestu aðstæður sem mögulegt er til að eyða ævikvöldinu við. Þær aðstæður að geta eytt þeim í heimabyggð er mikilvæg og öllum ætti á að vera sá kostur mögulegur. Lítið notalegt og fallegt dvalarheimili með 20 dvalarrýmum er sú framtíðarsýn okkar sem vonandi verður að veruleika með bættri samvinnu allra í málefnum aldraðra.
Ég mun áfram vinna að því að svo megi verða.
Fatlaðrir
Eftir flutning málefna fatlaðra til sveitarfélaganna hefur árangur um betri þjónustu til handa fötluðum einstaklingum orðið að veruleika. Unnið er að bættri stöðu í búsetumálum þeirra og margt áunnist en einnig margt eftir til að uppfylla þó réttindi fatlaðra sem lög um málefni faltlaðra kveður á um. Augljóst er að fjármunir frá ríki þurfa mun meir að fylgja þessum málaflokk. Sveitarfélögin geta ekki borið aukin kostnað við betri þjónustu þó að ríkur vilji sé fyrir því að fatlaðir einstaklingar fái alla þá bestu þjónustu og skilyrði til búsetu sem völ er á.
Umhverfið
Fallegt umhverfi og návist við náttúruna er okkar sérstaða. Fegrun bæjarins er eitt mikilvægasta málið sem ég mun beita mér fyrir næstu árin ef þú kjósandi góður gefur mér tækifæri til þess.
Göngustígar, gangstéttir, leiksvæði, og fegrun svæða í íbúabyggðinni er eitt af þeim. Svæði sem auðvelt er að gera að fallegum útivistarstað fyrir fjölskylduna með sameiginlegu átaki og samvinnu allra. Gott væri að íbúarnir kæmu með hugmyndir um „Betri Garð“ eins og nýja heimasíðan okkar gefur tækifæri til. Ég mun leggja mitt að mörkum í því.
Síðasta kjörtímabil D-listans varð ekki eins og við lögðum upp með eins og allir vita, því fór verr. Nú hefjum við nýja ferð til næsta kjörtímabils þar sem ég mun af krafti og dugnaði leggja mitt að mörkum til þess að vinna að enn betra samfélagi í Garði með þá reynslu og þekkingu sem ég hef aflað mér á síðastliðnum 8 árum.
Ég sækist því kjósandi góður eftir 2. sæti á listanum.
Brynja Kristjánsdóttir
bæjarfulltrúi