HSS sumarstörf 14-21 mars
HSS sumarstörf 14-21 mars

Aðsent

Hversu mikils virði er mannslíf?
Grindavíkurvegur. VF-mynd/HilmarBragi
Þriðjudagur 7. mars 2017 kl. 10:54

Hversu mikils virði er mannslíf?

- Aðsend grein frá stjórn Ungra Pírata á Suðurnesjum

Ungir Píratar á Suðurnesjum álykta að Samgönguráðuneytið og Vegagerðin sýni Íslendingum mikla vanvirðingu með því að draga lappirnar þegar kemur að nauðsynlegum vegaframkvæmdum á Grindavíkurvegi, sérstaklega í ljósi nýlegra atvika þar sem tvær konur hafa misst lífið á sama vegakaflanum á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Grindavíkurvegur er á lista yfir áhættu- og slysamestu vegi landsins. Nú er komið nóg! Öryggi fólks ætti ávallt að vera í fyrirrúmi.

Betrumbætur á Grindavíkurvegi hefur verið hávær krafa Suðurnesjamanna undanfarin ár og skömm er að því að ástandi á honum sé enn ábótavant. Mikið af ungum og óreyndum ökumönnum og ferðamönnum, sem hafa í mörgum tilfellum litla sem enga reynslu af veðurfari og vegakerfi okkar, aka veginn daglega og því geta breytingar ekki beðið lengur. Brýnast er að ráðast í tvöföldun vegarins, setja upp viðvörunarskilti og minnka dældir í veginum, algjör lágmarksbreyting er að vegurinn verði lýstur upp.

Public deli
Public deli

Eitt líf er einu of mikið og til háborinnar skammar að ekki sé vilji til að leggja nauðsynlegt fjármagn í þessar breytingar.

Stjórn Ungra Pírata á Suðurnesjum