Hvers virði er allt heimsins prjál?
„Hvers virði er allt heimsins prjál ef það er enginn hér
sem stendur kyrr er aðrir hverfa á braut.
Sem vill þér jafnan vel og deilir með þér gleði og sorg
þá áttu minna en ekki neitt ef þú átt engan vin“.
Þessi texti Ólafs Hauks Símonarsonar er ein af perlum íslenskrar textagerðar að mínum dómi. Hann er það vegna þess hversu ótrúlega sannur hann er og kemur hann oft upp í huga mér þegar ég hugsa til þess hvernig ástandið er í okkar litla þjóðfélagi. Skortur á trausti, heiðarleika og samstöðu er svo yfirþyrmandi að manni fallast hreinlega hendur á stundum. Nú þegar þörfin á þessu þrennu er svo hrópandi, maður finnur á samtölum sínum við fólk að það vill sjá breytta tíma. Tíma þar sem grunngildin í okkar samfélagi séu höfð að leiðarljósi í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur og þar fara traust og heiðarleiki fremst í flokki. Það er kunnara en frá þurfi að segja að frumskilyrði mannlegra samskipta er traustið og um leið og það dvínar fer að halla undan fæti. Og um leið og það dvínar veldur það árekstrum og deilum manna í millum og fólk missir trúna á samfélagið. Því meira traust sem ríkir á milli fólks þeim mun heilbrigðara og sanngjarnara verður samfélagið.
Almenningur verður að geta treyst stjórnmálamönnum og að þeir sinni sínum störfum að alúð og umhyggju. Heiðarleiki er þeirra höfuðdyggð. Almenningur verður að finna að þegar bjátar á þá eigi þeir „vin“ í kjörnum fulltrúum á Alþingi, vin sem setur heill og hamingju þeirra í öndvegi í störfum sínum. Því eins og máltækið segir: „Sá sem fer að dæmi heiðarlegs manns bætir ekki aðeins sjálfan sig heldur heiminn sjálfan“.
Seinna erindið í þessum fallega texta Ólafs Hauks er alveg jafn innihaldsríkt og það fyrra:
„Hvers virði er að eignast allt í heimi hér
en skorta þetta eitt sem enginn getur keypt.
Hversu ríkur sem þú telst og hversu fullar hendur fjár
þá áttu minna en ekki neitt ef þú átt engan vin“.
Sumir hafa slegið því fram að við í Bjartri framtíð séum innhaldslaust stjórnmálaafl sem vilji bara að „öll dýrin í skóginum eigi að vera vinir“. Björt framtíð er frjálslyndur stjórnmálaflokkur og í frjálslyndinu felst að við viljum leita í sameiningu að góðum lausnum. Það er enginn skortur á hugmyndum um hvernig við gerum þjóðfélagið betra, það vantar viljann til að vinna saman með hagsmuni almennings í öndvegi. Við viljum í raun ekki vera eins og öll dýrin í skóginum sem gera ekki annað en að éta hvort annað. Við viljum aftur á móti gera störf Alþingis uppbyggilegri, breyta stjórnmálunum, vinna að friði í samfélaginu og tala af sanngirni við hvert annað því að þannig eflum við traust og heiðarleika.
Björt framtíð vill vera vinur.
Páll Valur Björnsson