Hvers vegna Íslensk Þjóðfylking?
Íslenska Þjóðfylkingin er nýr flokkur og býður nú fram í fyrsta sinn í tveimur kjördæmum, S-kjördæmi og NV-kjördæmi.
Íslenska þjóðfylkingin vill standa vörð um sjálfstæði Íslands, íslenska menningu og íslenska velferðarkerfið. Grunnstefna flokksins er: Einstaklingsfrelsi, að auka beint lýðræði, gegnsær ríkisrekstur, náttúruvernd og haftalaus milliríkjaviðskipti.
Íslenska þjóðfylkingin beitir sér fyrir auknu jafnvægi í byggðum landsins, málefnum fjölskyldna og heimila. Að efla smærri og meðalstór fyrirtæki, sem eru hornsteinar samfélagsins. Málefni öryrkja og aldraðra verði í öndvegi og unnið sé gegn fátækt á Íslandi. Grunnheilbrigðisþjónusta verði gjaldfrjáls. Skattleysismörk verði 300 þús. Reglur um fjármálafyrirtæki verði stórhertar og tekið verði af hörku á spillingu. Verðtrygging verði afnumin og lífeyrissjóðskerfið endurskoðað.
Við viljum endurskoðun fiskveiðistjórnunar frá grunni og frelsi í sjávarútvegsmálum. Aukið frelsi í strandveiðum. Fiskveiðiauðlindin verði sameign þjóðarinnar samkvæmt stjórnarskrá. Erlent eignarhald verði afnumið í sjávarútvegi.
Íslenska Þjóðfylkingin vill stórefla löggæslu, landhelgis- og tollgæslu og auka þátttöku Íslendinga í öryggis- og varnarmálum.
Við höfnum alfarið aðild Íslands að Evrópusambandinu og TISA. Við viljum úrsögn úr Schengen án tafar. Íslenska þjóðfylkingin vill þjóðaratkvæðagreiðslu um þau mál sem varða þjóðarheill. Landsvirkjun, Rarik og Landsnet verði ætíð að fullu í eigu þjóðarinnar.
Íslenska þjóðfylkingin vill herta innflytjendalöggjöf og innleiða 48 tíma regluna í málefnum hælisleitenda. Flokkurinn hafnar sharía-lögum og vill að búrkur, starfsemi moska og kóranskóla verði bönnuð.
Nokkuð er um að flokksmeðlimir I. Þ. hafi verið kallaðir kynþáttahatarar vegna athugasemda þeirra við nýju útlendingalögin. Lögin sem fæstir þekkja, galopna landamæri okkar og fólk kemst inn í landið skv. þeim án þess að fortíð viðkomandi sé rannsökuð. Þessu mótmælir allt hugsandi fólk vegna hættu á því að hér flykkist inn fólk sem er hættulegt okkur og menningu okkar. Flokkurinn styður fólk sem er stríðshrjáð, í neyð og fólk sem kemur hér og aðlagast. Hér með er mýtan um kynþáttahatrið leiðrétt. Við styðjum kristin gildi og viðhorf, virðum trúfrelsi en höfnum trúarbrögðum sem eru andstæð stjórnarskrá landsins.
Vegna hins hörmulega ástands í Evrópu þar sem nú ríkir meira og minna tvímenning eru eðlilega að rísa upp flokkar sem leggja áherslu á vernd menningar og samfélags síns. Tilvist Islam í Evrópu er orðin hrópandi staðreynd með tilheyrandi hryðjuverkum, manndrápum og óhæfuverkum alls konar sem islamskar öfgahreyfingar hafa lýst ábyrgð á. Líf hins venjulega borgara víða í Evrópu hefur breyst mikið vegna þessa og sum lönd eins og Svíþjóð eru að hruni komin efnahagslega og samfélagslega. Fólk er orðið þreytt á að lifa í stöðugum ótta og vill löndin sín aftur eins og þau voru áður og sporna við innflutningi fólks sem ekki aðlagast. Þetta ástand viljum við ekki hér og getum komið í veg fyrir ef stjórnvöld vakna ekki of seint? Íslenska Þjóðfylkingin er sambærileg við danska Þjóðarflokkinn og France National Front í Frakklandi með Marine Le Pen í broddi fylkingar. Flokkar af þessu tagi eru að rísa upp og þeir sem fyrir voru, að styrkjast í Evrópu. Ennfremur má geta um vöxt flokks Svíþjóðardemokrata. Fleira má telja upp um góða stefnuskrá flokksins en benda má ykkur á vandaða heimasíðu okkar X – E.is.
María Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Höfundur skipar 5. sæti á lista Íslensku Þjóðfylkingarinnar í Suður- kjördæmi.