HSS
HSS

Aðsent

Hver á Hitaveitu Suðurnesja á morgun?
Þriðjudagur 9. október 2007 kl. 10:04

Hver á Hitaveitu Suðurnesja á morgun?

Fyrir rúmu ári síðan tilkynnti Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra að hann ætlaði að selja hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja hf. (HS) til einkaaðila. Það verður að segjast eins og er að þessi ákvörðun orkaði mjög tvímælis í hugum margra hér á Suðurnesjum enda verið að opna fyrir það að þetta fjöregg gæti orðið leiksoppur á uppboðsmarkaði fjármálamanna. Mörgum fannst – þar á meðal mér – að fyrst á annað borð væri verið að bjóða hluti HS til sölu til einkaaðila mætti allt eins bjóða það öllum almenningi. En nei, það þótti of flókið og varð því úr að hlutur ríkisins í HS var seldur umbreytingarfyrirtæki Hannesar Smárasonar o. co. Geysir Green Energy. Síðan þetta gerðist hafa öll sveitarfélögin á Suðurnesjum selt hlut sinn í HS nema Reykjanesbær.

Það vakti undrun þegar Orkuveita Reykjavíkur keypti hlut í HS – til hvers? Sumum fannst reyndar gott að fá Orkuveituna inn í HS. Orkuveitan myndi sem opinber aðili standa vörð um fyrirtækið með Reykjanesbæ og Hafnfirðingum og þannig héldist það í eigu Íslendinga en saman eiga þessir þrír aðilar 67 % hlut í HS. Annað virðist þó vera að koma á daginn því Orkuveitan er tilbúnir til að fórna HS og leggja eign sína þar fram sem áhættuhlut í Reykjavík Energy Invest (REI). Var þetta ætlun forustumanna  Orkuveitunnar þegar þeir keyptu hlutinn í HS?

Stofnun útrásarfyrirtækisins REI er merkileg smíð þar sem spunameistarar fjármálamannanna hefur náð hæstu hæðum. Með ótrúlegum klókindum hafa þeir náð að véla meirihluta hlutafjár Hitaveitu Suðurnesja inn í REI án þess að nokkur taki eftir því. Meðan deilt er um keisarans skegg í Reykjavík hverfur HS í reykjarmökkinn af írafárinu um kaupréttarsamninga og lítið samráð.  Það er ekki verið að tala um einhverja örfáa milljarða króna í hlutafé þegar HS er annar vegar. Þar er verið að tala um orkuna og virkjanaleyfi framtíðarinnar. Þær eignir HS sem fara inn í REI eru tvær virkjanir þ.e. Reykjanesvirkjun og Svartsengi ásamt vatnsréttindum á meirihluta Reykjanesskagans og það sem meira er virkjanaleyfi á svæðinu m.a. við Trölladyngju, Sandfell og Krísuvík. Geysir Green Energy á 32 % í HS og þar sem Orkuveita Reykjavíkur á tæp 17 % ásamt forkaupsrétti í 15% hlut Hafnfirðinga er REI orðinn meirihluta eigandi í HS. Þá er enginn eftir til að gæta opinberra hagsmuna fólksins á Suðurnesjum nema Reykjanesbær með sinn tæplega 35% eignarhlut, en hvað dugir hann á móti spunameisturum peninganna?

Ef ráðherrar telja að Orkuveita Reykjavíkur eigi ekki að vera í áhættusömum rekstri getur það varla talist eðlilegt að Hitaveita Suðurnesja hf. sé notuð sem hlutafé í áhætturekstri.  Ef ráðherrar ríkisstjórnar Íslands meina eitthvað með því sem þeir segja - um að koma böndum á orkuauðlindir landsmanna og binda í lög að þær verði ekki seldar erlendum aðilum eða til áhættufjárfestinga - þá verður að stoppa það að REI eignist Hitaveitu Suðurnesja.

Ef það gerist ekki getur umræða síðustu daga vart talist vera annað en orðaglamur.

Kristján Pálsson
f.v. alþingismaður og bæjarstjóri í Njarðvík

Bílakjarninn
Bílakjarninn