Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Hvar er orkan fyrir Helguvík?
Fimmtudagur 22. október 2009 kl. 08:52

Hvar er orkan fyrir Helguvík?

Græna netið leitar að raforku fyrir 360 þúsund tonna álver á Suðurnesjum – fundur á Sólon laugardag.

Þeir Sigmundur Einarsson jarðfræðingur, Dofri Hermannsson varaborgarfulltrúi og Ágúst Hafberg framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og samskipta hjá Norðuráli eru málshefjendur á fundi Græna netsins á laugardag um orkumál, þar sem leitað verður svara við áleitnum spurningum um orku fyrir áformuð álver á Suðvesturhorninu og fyrir norðan. Fundurinn er haldinn á Sólon við Bankastræti í Reykjavík og hefst kl. 11 árdegis. Fundarstjóri verður Sigrún Pálsdóttir.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Fullgert á álver Norðuráls við Helguvík að geta framleitt 360 þúsund tonn áls á ári, heldur meira en ver Fjarðaáls í Reyðarfirði. Til þessa þarf 630 þúsund megavött (Kárahnjúkavirkjun: 690 MW), og er ýmsum spurningum ósvarað um þá orkuöflun. Þeir Sigmundur og Dofri eru meðal þeirra sem hafa efast um orkuöflun til framkvæmdanna en Norðurál hefur á hinn bóginn birt á heimasíðu sinni yfirlit um ýmsa orkukosti sem til greina komi. Svipaðar spurningar eru uppi um áformaðar álversframkvæmdir við Húsavík.

Áformað Helguvíkurálver er daglega í fréttum vegna þessara orkumála, suðvesturlínu og úrskurðar umhverfisráðherra, stöðugleikasamningsins, fjáröflunarvanda og atvinnustefnu. Má því búast við fjörugum fundi á Sólon. Því er við að bæta að Mörður Árnason, formaður Græna netsins, hefur á bloggsíðu sinni boðið Björgvini G. Sigurðssyni alþingismanni sérstaklega á fundinn vegna stuðningsyfirlýsingar Björgvins við tillögu stjórnarandstæðinga á þingi gegn úrskurði umhverfisráðherra.

Allir velkomnir á Sólon, laugardag frá kl. 11.

Stjórn Græna netsins