Hvað er það dýrmætasta sem við eigum?
Kjarabarátta leikskólakennara stendur nú sem hæst en lítið hefur mjakast í þeim efnum og stefnir í verkfall þann 22. ágúst næstkomandi. Barátta okkar fyrir mannsæmandi launum hefur fengið lítinn hljómgrunn á undanförnum árum en nú er staðan sú að leikskólakennarar hafa verið samningalausir frá árinu 2009 og hafa dregist verulega aftur úr viðmiðunarstéttum. Verkfall er ekki óskastaða og við gerum okkur grein fyrir því að það mun fyrst og fremst bitna á þeim sem síst skildi, þ.e. börnum og fjölskyldum þeirra.
Hvað er það dýrmætasta sem við eigum? Þessu er fljótsvarað, það eru að sjálfsögðu börnin okkar, þau eru fjársjóður framtíðar og það eru þau sem ætla að byggja upp framtíðina. En hverju er samfélagið tilbúi að kosta til til að varðveita þennan fjársjóð? Ekki miklu, það er alveg ljóst. Það er aftur á móti tilbúið að eyða ansi háum fjárhæðum í vörslu peninga sem geta orðið verðlausir með öllu á örskammri stundu.
Starfið í leiks kólanum einkennist af gleði og jákvæðni. Þetta er yndislegt starf með frábærum kennurum, yndislegum börnum og fjölskyldum. Þetta er það sem gerir starfið dýrmætt. En vert er að hafa í huga að þetta gerist ekki allt af sjálfu sér. Það þarf góða stjórnun, skipulag, fagkunnáttu og reynslu til að halda þessu mikilvæga starfi á því framsækna stigi sem það er.
Menntun leikskólakennara tekur í dag fimm ár en var áður þriggja ára nám. Leikskólakennarar hafa verið duglegir að afla sér aukinnar menntunar á mörgum sviðum, svo sem í stjórnun, menntun ungra barna og sérkennslu svo eitthvað sé nefnt. Leikskólakennarar hafa ávallt unnið starf sitt af metnaði og hugsjón sem er vel en það eitt og sér dugar ekki lengur. .Nú er svo sannarlega nóg komið og það er sjálfsagður réttur okkar að starf okkar og menntun sé metið á sama hátt og aðrar stéttir með sambærilega menntun.
Við lítum á það sem mannréttindabrot að geta ekki lifað mannsæmandi lífi af launum okkar. Við erum stétt þar sem konur eru í miklum meirihluta og það verður ekki liðið lengur að það sé sjálfsagt mál að kvennastéttir séu láglaunastéttir. Nú er kominn tími til að gera kröfur.
Það er ósk okkar að samninganefnd sveitafélaga sjái sóma sinn í því að semja við kjaranefnd leikskólakennara fyrir 22.ágúst. Það eru breyttir tímar í þjóðfélaginu og við vonumst til að verðmætamatið hafi einnig breyst.
Við óskum eftir stuðningi ykkar allra í baráttu okkar fyrir bættari kjörum. Leikskólastigið er grunnurinn að framtíðinni, það er það sem við byggjum á, sá grunnur þarf að vera sterkur. Það erum við leikskólakennarar í samvinnu við foreldra, sem og samfélagið í heild, sem berum ábyrgð á að sá grunnur sé eins sterkur og mögulegt er.
Við skorum á stjórnvöld og samfélagið í heild að íhuga af alvöru þetta óréttlæti sem okkur hefur verið sýnt, taka afstöðu með okkur leikskólakennurum og standa vörð um þetta mikilvæga skólastig. STÖNDUM SAMAN
„Börnin eru gullnáma. Hlutverk hinna fullorðnu er að fá gullið til að glóa.“
(Loris Malaguzzi)
Heiða Ingólfsdóttir
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Magnea Sif Einarsdóttir
Sigurbjört Kristjánsdóttir
Leikskólakennarar á Holti í Reykjanesbæ