Hvað er orðið um flug í þessu bæjarfélagi ?

Í dag á Suðurnesjum er inni aðstaða fyrir ca. 4 flugvélar, (2-4 manna) í flugskýli Suðurflugs, Suðurflug er með tvær af þessum vélum og hinar eru í einkaeign og er ansi þröngt um þær, ég veit einnig um tvær vélar sem eru geymdar inni í skúrum inni í miðri Keflavík, ég þekki líka til margra manna sem eru búnir að læra eða eru að læra flug og eru í vandræðum með hvað taki við ef þeir vilji kaupa vél og hafa hana hér fyrir sunnan, algengt er að nokkrir pari sig saman og kaupi eina vél í hlutafélagi, það er ekki grundvöllur fyrir að hafa vél hér fyrir sunnan og yrði að hafa vélina í Reykjavík og jafnvel þyrftu að geyma vélarnar úti þar.
Á skipulagi var gert ráð fyrir uppbyggingu og aðstöðu fyrir einkaflug á flugvallarsvæðinu, en núna er það komið út af teikningu og ekkert er að gert og engum virðist varða um þetta, ég skora á alla flokka til að skoða þetta og líta á þetta tækifæri sem við höfum því allt er eins og verður best á kosið með tilliti til alls og ekki má líta fram hjá því að mikið er lagt upp úr öryggi á brautunum og er slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli mjög frambærilegt á því sviði. Mín tillaga er sú að reisa eitt stórt stálgrindarhús og hafa þar inni ljós og ekki er mikill rekstrarkostnaður af þess háttar mannvirki, leigð yrðu út stæði, þar af leiðandi kæmu inn tekjur, þori ég að fullyrða að innan skamms myndi lifna yfir þessu dapurlega ástandi sem nú ríkir hjá okkur í þessum geira, líka væri hægt að leigja þak yfir þær fjölmörgu vélar sem millilenda hér á leið sinni yfir Atlanshafið og stoppa nokkra daga hér á landi, en aðbúnaður fyrir þessar vélar er fyrir neðan allar hellur, á Reykjavíkur flugvelli er oft mikið um vélar sem standa úti á meðan dvölinni stendur, einnig á flugstæði hjá Suðurflugi, þannig að möguleikarnir eru miklir í sambandi við nýtni á svona húsi.
Til fróðleiks má geta að fyrir nokkrum árum fór öll bókleg kennsla til atvinnuflugnáms fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og margir af starfandi flugmönnum t.d. hjá Flugleiðum lærðu þar, hægt væri að útbúa aðstöðu fyrir bóklega kennslu og jafnvel fyrir verklega kennslu líka. Undirritaður var í bæði einkaflugs og atvinnuflugs námi hjá Flugskóla Íslands og voru ca.45% af nemendunum í bekkjunum utan af landi sem þýðir að það eru ekki bara íbúar af höfuðborgarsvæðinu sem læra þetta fag og því ætti að vera grundvöllur fyrir að hafa þetta allt hér fyrir sunnan og bjóða þá uppá allt það besta og við bestu aðstæður sem völ er á, mikið af kennslufluginu úr Reykjavík fer þannig fram að æft er á Keflavíkurflugvelli og fer heilmikill tími í að fljúga til Keflavíkur til að æfa lendingar og aðflug (sem þarf að æfa hvað mest).
Þrátt fyrir að niðursveifla sé í atvinnuflugi í dag, þá er það staðreynd að eftir niðursveiflu kemur uppsveifla, eins og fólk veit að þá er flug staðreynd og verður það áfram, það er bara spurning um hver undirbýr sig og tekur við þessu frá höfuðborginni.
Að endingu vil ég segja að það sem ég er að skrifa um myndi auka aðbúnað til flugs á minni vélum, án efa myndi þetta hafa atvinnuskapandi áhrif og bæjarfélögin eftirsóknarverðari til að búa í, skoðið því gróðann til lengri tíma litið.
Með von um svör við þessari áskorun, og ef stefna er til um þetta þá væri gaman að fá að sjá hana.
Kveðja
Þórarinn Ingi Ingason
Flugmaður
[email protected]
Eftirfarandi aðilar taka undir þessa áskorun til sveitarstjórnarmanna á Suðurnesjum:
Eðvald Ragnarsson Flugvirki
Ólafur Björn Borgarsson Flugmaður
Elentínus Sverrisson Flugmaður / Flugvirki
Ragnar Már Ragnarsson Flugmaður
Ragnar Örn Pétursson Forvarnar og Æskulýðsfulltrúi
Ragnar Ingason Flugmaður
Sigurbjörn Björnsson Flugmaður
Gísli Grétar Bjarnarson Flugvirki
Skúli Th. Theodorsson Flugvirki
Sveinn Ó. Jónasson Flugvirki
Þorkell Gunnarsson Flugumsjón
Jón Ingi Jónsson Flugumsjón / Flugmaður
Ingimar Örn Karlsson Flugumsjón / Flugmaður
Kristinn Einarsson Flugumsjón / Flugáhugamaður
Einar Júlíusson Flugmaður
Jónas Þór Jónasson Flugvirki
Geir Reynisson Fyrrverandi Flugmaður
Erling B. Ingimundarson Flugáhugamaður
Einar Örn Einarsson Framkv.stj. Flugskólans Flugsýnar / Rekstrarsj. Jórvíkur
Tyrfingur Þorsteinsson Flugmaður / Flugumsjón
Eyjólfur Kristinsson Flugmaður
Viðar Þór Maríusson Flugmaður / Flugumsjón