Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Aðsent

Hugleiðingar nýs þingmanns
Laugardagur 6. júlí 2013 kl. 09:33

Hugleiðingar nýs þingmanns

Það er ekki ofsögum sagt að það er töluvert krefjandi starf að vera þingmaður og það hef ég sannreynt nú á þessu sumarþingi sem staðið hefur yfir síðustu vikur. Það er mikið að læra bæði hvað varðar að setja sig inn í einstök mál og svo að setja sig inn í þær hefðir og venjur sem einkenna þessa mikilvægu stofnun okkar Íslendinga.

Allt hefur þetta gegnið stórslysalaust fyrir sig og það er ekki síst að þakka þeim fjölmörgu úrvals starfsmönnum sem starfa við alþingi. Það hefur gengið á ýmsu á þessu sumarþingi og ekki allir eitt sáttir um þau mál sem ríkisstjórnin hefur sett fram. Það sem undirrituðum hefur komið mest á óvart er sú forgangsröðun sem hæstvirt ríkisstjórn hefur viðhaft en eins og öllum er kunnugt voru það skuldamál heimilinna sem tóku bróðurpart allrar umræðu í kosningabaráttunni. Það hefði því legið beinast við að fyrstu mál ríkisstjórnarinnar hefðu fjallað um þau mál í ríkari mæli en raun hefur orðið á.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Röng forgangsröðun?
Þess í stað hafa forgangsmálin verið að draga til baka fyrirhugaða virðisaukaskattshækkun á gistingu sem í raun erlendir ferðamenn hefðu komið til með að borga og lækkun á veiðileyfagjaldi á útgerðina sem hefur aldrei staðið betur en einmitt nú. Ég nefni þessi tvö mál sérstaklega þar sem að komið hefur í ljós eins og reyndar flestir vissu að staða ríkissjóðs er slæm og er útlit fyrir að fjárlagagatið sé rúmir 30 milljarðar. Það skýtur því skökku við að fyrstu mál nýrrar ríkisstjórnar sé að afsala sér tekjum upp á c.a. 10. milljarða á næstu tveimur árum án þess að skýra út fyrir þingheimi og almenningi öllum hvernig mæta eigi þessu tekjutapi. Það jákvæða er þó að ríkisstjórnin hefur hrundið af stað aðgerðaáætlun í 10 liðum sem kemur til með ef allt gengur eftir að skila árangri síðar á árinu.

Málefnaleg og gagnrýnin
Við þingmenn Bjartrar framtíðar höfum leitast við á þessum fyrstu skrefum okkar á þingi að fylgja okkar stefnuskrá og áherslum. Við erum málefnaleg í málflutningi okkar og reynum að leggja áherslu á aukið samráð þvert á flokka. Við höfum gagnrýnt það sem við höfum ekki talið vera „góð mál“ eins og þau sem nefnd voru hér fyrst en höfum stutt þau mál eins og t.d. aðgerðaáætlunina sem við teljum til bóta fyrir samfélagið. Við komum til með að halda þessum vinnubrögðum okkar áfram og hvika hvergi frá þeirri viðleitni okkar að reyna að breyta stjórnmálunum því að okkar dómi er ekki vanþörf á.

Samvinna og sáttfýsi
Það er afar mikilvægt að kjörnir fulltrúar á alþingi gagni á undan með góðu fordæmi og bæti hugarfar, viðhorfi og samskipti sín í millum og verði þannig leiðarljós út í samfélagið. Það hefur verið afskaplega ánægjulegt að taka þátt í þessu sumarþingi og kynnast öllu þessu góða fólki sem starfar þarna hvort sem það eru alþingismenn eða aðrir starfsmenn. Það er ljóst að gríðarmikið starf er framundan við að byggja upp og koma samfélagi okkar aftur á réttan kjöl, bæta stöðu þeirra verst settu og gera landið okkar að því fyrirmyndarríki sem það hefur alla burði til að vera.

Samvinna, auðmýkt, sáttfýsi og virðing eiga að vera okkar einkunnarorð okkar inn í framtíðina því ef við ræktum þessi gildi og dyggðir þá aukum við traust sem er frumskilyrði mannlegra samskipta og heldur samfélagi manna saman. Ekki síst er auðmýktin mikilvæg þegar að skiptar skoðanir eru um hvernig leysa eigi málin því að sá auðmjúki er mjúklyndur í hjarta og lætur sér finnast til um verk annarra. Megi sumarið veita ykkur birtu og yl og kalla fram bros í hjarta.
 

Páll Valur Björnsson,

Þingmaður Bjartar framtíðar