Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Hreysti frábær leið til að ná jafnvægi
Harpa Hauksdóttir var ein þeirra sem að tóku þátt í námsskeiðinu og náði frábærum árangri.
Mánudagur 7. september 2015 kl. 15:09

Hreysti frábær leið til að ná jafnvægi

– á milli andlegrar og líkamlegrar heilsu

Hvað er Hreysti? Hreysti er ný endurhæfingarleið hjá Samvinnu sem er starfsendurhæfingardeild innan Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum. Hreysti er byggð upp á þrem meginþáttum: Hreyfingu, Núvitund og Fræðslu.  Ásamt því er fjölþætt heilsutengd fræðsla stór partur af námsskeiðinu. Fyrsti hópurinn í Hreysti fór af stað hjá Samvinnu í febrúar 2015 og stóð námsskeiðið í átta vikur en verkefnið er þróunarverkefnið styrkt af VIRK starfsendurhæfingarsjóði. Árangur verkefnis var góður og bæði andleg og líkamleg líðan þátttakanda batnaði til muna.

Hreysti er sérsniðin endurhæfing ætluð þeim sem þurfa að byggja sig upp líkamlega og auka andlega vellíðan en þátttakendum er vísað í Hreysti af ráðgjöfum VIRK. Endurhæfingin er góð leið fyrir þá einstaklinga sem eru að koma sér af stað í hreyfingu og þurfa til þess aðstoð og utanumhald. Einnig þá sem eru að glíma við stoðkerfisvanda eða jafna sig eftir slys eða veikindi.

Heildstæð úrlausn á vanda hvers þátttakanda

Niðurstöður úr matslistanum Heilsutengd Lífsgæði sem þátttakendur sem lagðir voru fyrir þátttakendur fyrir og eftir námsskeiðið má sjá á meðfylgjandi mynd.  


Er orkumeiri, verkjaminni og meðvitaðri um takmörkin mín

Harpa Hauksdóttir var ein þeirra sem að tóku þátt í námsskeiðinu og náði frábærum árangri.

„Ég lenti í vinnuslysi þegar ég fékk fiskikar ofan á höfuðið sem hafði þær afleiðingar að ég tognaði í hálsi, herðablaði og taugar urðu fyrir hnjaski. Hreyfigeta mín skertist, ég þjáist af verkjum sem leiddi til þess að ég varð óvinnufær í kjölfar slyssins. Í svona ástandi er oft erfitt að halda í jákvæðnina og andleg líðan mín versnaði. Læknir vísaði mér til VIRK starfsendurhæfingarsjóðs og var mér svo vísað í Hreysti af ráðgjafanum mínum hjá VIRK.

Ég var ekki í góðum málum líkamlega né andlega og óskaði þess að fá betri líðan. Ég hef alltaf stundað einhverja hreyfingu með góðum hléum en í Hreysti náði ég að koma hreyfingunni inn og stundaði hana af kappi fjórum sinnum í viku. Fyrir nokkrum árum hóf ég að vinna mikið með andlega líðan mína, í Hreysti fékk ég svo kærkomin verkfæri til þess að ná enn betri árangri í þeirri vinnu. Að taka þátt í Hreysti hefur hjálpað mér að ná jafnvægi á milli andlegrar og líkamlegrar heilsu, við erum öll svo ólík og þurfum að læra að hlusta á okkur sjálf og þekkja takmörkin okkar, það var svo sannarlega nálgunin sem við fengum í Hreysti. Stuðningurinn af kennurunum var frábær og svo var  hópurinn náinn og hvetjandi.“  

„Ég náði góðum árangri á námsskeiðinu, er orkumeiri, verkjaminni og meðvitaðri um takmörk mín. Ég er komin með skýra framtíðarsýn, stefni á djáknanám, með stoppi í Háskólagáttinni á Bifröst og hugsa hlýtt til þess að hjálpa fólki í framtíðinni með verkefni lífsins,“ segir Harpa að lokum.

Næsta námsskeið af Hreysti hefst 14. september. 

Sé Hreysti eitthvað fyrir þig ekki hika við að hafa samband og fá frekari upplýsingar á netfangið [email protected]
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024