Aðsent

Hreinsa strandlengjuna í Selvogi
Miðvikudagur 24. ágúst 2016 kl. 08:43

Hreinsa strandlengjuna í Selvogi

Blái herinn og sendiráð Bandaríkjanna bjóða ykkur að taka þátt í fjöruhreinsun þann 31. ágúst á strandlengjunni í Selvogi, Ölfushreppi.

Þetta er þriðja árið sem Blái herinn og sendiráð Bandaríkjanna sameinast við að hreinsa fjörur og viljum við því bjóða ykkur að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni.  Í ár verjum við deginum á strandlengjunni við Selvog í Ölfusi  en þar  munum við tína rusl sem verður svo ferjað í ruslagáma.  Að hreinsun lokinni verður grillveisla í boði sveitarfélagsins Ölfuss og landeigenda.

Strandlengjunni verður skipt niður í nokkur svæði sem verkefnastjórar stýra.  Landeigendur hjálpa til og leiðbeina okkur um svæðin.  Áætlað er að hefja hreinsunina kl. 13:00.

Sendiráð Bandaríkjanna mun bjóða upp á rútuferð til og frá Selvogi sem fer frá Reykjavík kl. 11:00, en frekari upplýsingar um brottfararstað verða sendar út síðar.  Fyrir þá sem mæta á einkabílum verður hist hjá tjaldsvæðinu við Strandarkirkjuafleggjaranum (GPS hnit:  63.830833, -21.677238).  Við hvetjum fólk til að sameinast í bíla.

Mikilvægt er að staðfesta þátttöku sem fyrst, svo hægt sé að áætla hvað við þurfum mikið af mat og drykk.  Vinsamlegast sendið staðfestingu á Tómas Knútsson, [email protected].

Athugið að klæða ykkur eftir veðri og hafa góða vettlinga meðferðis.

Við hvetjum ykkur til þess að taka þátt í þessu frábæra verkefni þar sem Bandaríkin og Ísland taka höndum saman og gera umhverfið betra.

Við hlökkum til að sjá ykkur þann 31. ágúst.

Kveðja,
Blái herinn og bandaríska sendiráðið á Íslandi

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024