Public deli
Public deli

Aðsent

Hoppukastalinn og samfélagið okkar
Miðvikudagur 11. maí 2022 kl. 09:42

Hoppukastalinn og samfélagið okkar

Hoppukastalinn og samfélagið okkar

Þegar Píratar og óháðir opnuðu kosningaskrifstofu sína með pomp og prakt hér í Reykjanesbæ var ég settur yfir hoppukastalann sem börnin fengu í tilefni dagsins að leika sér í sól skein í heiði þó það væri svoldið kalt og pínu vindur. það er óhætt að segja að ég vissi ekkert hvað ég var búinn að koma mér í.  Það var mikið fjör og á köflum kannski aðeins of mikið fjör fyrir einn fullorðinn karl, ég hafði að vísu son mínn og frænda mér til aðstoðar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þetta var ágætlega stór hópur af börnum og virtust þau nánast öll vilja fara á sama tíma, ætli það sé ekki það sem börn eru þekkt fyrir.  Nú voru góð ráð dýr mér varð ljóst að mér var smá vandi að höndum. Vandamálið var nefnilega það að svo allir kæmust að þá myndu þau þurfa að fara í hring í kastalanum. Þetta reyndist vera svoldið snúið í framkvæmd því fyrir það fyrsta vildu sum bara ekkert fara hring önnur vildu bara fá að hoppa í friði fyrir fullorðna fólkinu skiljanlega. En þetta varð þess valdandi að stífla fór að myndast og allt stefndi í meiriháttar klúður. Það var því ekkert annað í stöðunni fyrir mig en að fara og skakka leikinn og með eins strangan föðurlegan svip og mér tókst að setja upp fór ég á þeirra fund. Ég var núna augljóslega að trufla fjörið hjá þeim. Það er eitthvað sem manni langar helst aldrei til að gera. Þau tóku nú samt bara vel í tilmæli mín úff og reyndist þetta ekki vera neitt stórmál þó það hafi virst svo við fyrstu sýn. Hvað ætli einn fullur hoppukastali af  hressum börnum geti verið mikið mál. Svo Þegar þau öll fóru hringinn í kastalanum varð þetta svo ekkert mál, fleiri bættust við og þetta gekk allt bara vel fyrir sig.

Eftirá, þegar ég fór aðeins að spá í þessu, þá sá ég svolítið sannleikskorn leynast í þessu. Hoppukastalinn er eins og samfélagið okkar. Það vilja allir taka þátt það vilja allir vera með og það getur verið rosalegt fjör. Stundum of mikið fjör.

Vandamálin í samfélögum byrja þegar allir vilja verða fyrstir ekki fara eftir reglum gleyma sér í fjörinu og heimta svo sérmeðferð. Þá fer allt í klúður. Það verða þess vegna að vera sanngjarnar leikreglur og eftirlit með fjörinu svo enginn fari sér að voða. Það verður alltaf að vera til taks fólk sem hefur taum á gleðinni svo allt fari nú vel svo allir geti tekið þátt. Það verður að skakka leikinn þegar stefnir í óefni þó það sé erfitt eða óþægilegt. Samfélag er ekki til án fólksins. Því þið skiptið máli.

Daníel Freyr Rögnvaldsson
5. sæti Píratar og óháðir