Hópganga frá Íþróttaakademíunni í dag
Heilsuefling á Suðurnesjum býður þér í klukkutíma hópgöngu í dag klukkan 17.30.
Hópurinn hittist alla miðvikudaga við Íþróttaakademíuna og gengið er á þægilegum hraða um götur bæjarins.
Við hvetjum alla til að koma og njóta þess að ganga úti í góðum félagsskap. Umsjónamaður gönguferðanna er Rannveig Garðarsdóttir (Nanný), svæðisleiðsögumaður og ferðamálafræðingur.
Allir eru velkomnir og gengið er í öllu veðri, allan ársins hring.