Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Þriðjudagur 23. janúar 2001 kl. 10:10

„Höfum átt þetta nafn í ellefu ár“, segir Jenný Jónsdóttir

Aðstandendur veitingahúss Jennýar annars vegar og rekstraraðilar Bláa lónsins hf. og Hitaveitu Suðurnesja hins vegar hafa stefnt hver öðrum þar sem báðir aðilar krefjast þess að hinn fái ekki að nota nafn Bláa lónsins. Héraðsdómur Reykjaness tók málið fyrir í síðustu viku en dómur verður felldur í málinu 2. febrúar nk. Að undanförnu hafa birst greinar um málið á síðum VF þar sem grein er gerð fyrir málinu og einnig hefur birst fréttatilkynning frá Bláa lóninu hf. Í dag gerir Jenný Jónsdóttir, rekstraraðili veitingahúss Jennýar, grein fyrir sinni hlið málsins en henni finnst forsvarsmenn Bláa lónsins hf. og Hitaveitu Suðurnesja hafa sýnt sér ótrúlegan yfirgang að undanförnu.

Vegna frétta sem hafa birst undanfarið í fjölmiðlum um málaferli vegna vörumerkisins Bláa Lónið og Blue Lagoon í flokki veitingaþjónustu, vill Veitingahúsið Jenný við Bláa Lónið koma eftirfarandi á framfæri:

Sama nafn í 11 ár
Frá 23. mars 1990 hefur „Veitingahúsið við Bláa Lónið”/„Restaurant Blue Lagoon” verið rekið í grennd við Bláa Lónið. Árið 1998 var nafninu Jenný skeytt við nafn veitingastaðarins til að persónugera staðinn meira og auka aðsókn að honum og er það nú notað samhliða fyrrgreindum nöfnum. Veitingahúsið hefur aldrei hætt að kynna sig undir vörumerkinu Bláa Lónið í þau nærri 11 ár sem hefur veitingastaðurinn verið rekinn. Meðal góðra viðskiptavina veitingastaðarins í gegnum tíðina hafa m.a. verið fyrirsvarsmenn bæði Hitaveitu Suðurnesja og Baðhússins við Bláa Lónið og voru starfsmenn baðhússins í mánaðarreikningi á veitingahúsinu um langt skeið.

Eina veitingahúsið
Um árabil átti veitingastaðurinn í góðu samstarfi við Hótel Bláa Lónið og Baðhúsið við Bláa Lónið um kynningu á þeirri ferðaþjónustu sem boðið hefur verið upp á við Bláa Lónið. Var þessi kynning og markaðssetning m.a. styrkt af Hitaveitu Suðurnesja. Á grundvelli 11 ára notkunar er Veitingahúsið við Bláa Lónið – Jenný eigandi að vörumerkjunum „Bláa Lónið” og „Blue Lagoon” í flokki veitingaþjónustu. Hvorki Hitaveita Suðurnesja né Bláa Lónið hf. hafa rekið veitingahús. Í dag er rekinn í hinum nýja baðstað veitingastaðurinn Lónið Veitingar. Sjoppurekstur Bláa Lónsins hf. í anddyri í gamla baðhúsinu flokkast ekki undir veitingastað (restaurant).

Hótað fangelsisvist
Eftir að Bláa Lónið hf. flutti í baðhúsið í hin nýju húsakynni sín hafa fyrirsvarsmenn Bláa Lónsins hf. sýnt aðstandendum veitingahússins ótrúlegan yfirgang. Hefur þeim verið hótað með lögbanni og fangelsisvist afsali þeir sér ekki nafni veitingastaðarins og hætti að kenna hann við Bláa Lónið. Er það ástæða þess að fyrirsvarsmenn veitingahússins sáu sér ekki annað fært en að höfða mál á hendur Bláa Lóninu hf. og Hitaveitu Suðurnesja til að geta verið í friði með nafn veitingastaðarins.
Í málinu krefst veitingahúsið ógildingar á vörumerkjaskráningu þessara aðila á vörumerkinu Bláa Lónið (Blue Lagoon) í flokki veitingaþjónustu og að þeim verið óheimilt nota það í tengslum við veitingaþjónustu. Að undirlagi fyrirsvarsmanna Bláa Lónsins hf. var nafn veitingahússins ekki lengur kennt við Bláa Lónið í símaskránni, líkt og verið hafði frá upphafi eða í nærri 11 ár. Var þetta gert án allra tilkynninga til veitinghússins, sem er rétthafi símanúmersins.

Nýtt hús hefur áhrif
Það skýtur óneitanlega nokkuð skökku við eftir að hafa unnið að uppbyggingu og markaðskynningu á ferðaþjónustu við Bláa Lónið og á Suðurnesjum, allt frá frumbýlingsárum hennar, að þurfa nú að standa í því að verja nafn veitingastaðar síns. Það hefur greinilega mikil áhrif að flytja í nýtt húsnæði.

Jenný Jónsdóttir
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024