Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Hjörtur formaður Uglu
Mánudagur 2. mars 2009 kl. 17:45

Hjörtur formaður Uglu

Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Uglu – ungra jafnaðarmanna á Suðurnejum sem var haldinn fimmtudaginn 26. febrúar. Nýr formaður Uglu er Hjörtur Guðbjartssom sem tekið við af Hilmari Kristinssyni.
Á fundinum var ný heimasíða Uglu tekin í notkun og er vefslóðin www.ugla.uj.is. Við sama tækifæri var einnig nýtt merki Uglu kynnt sem hannað var í framhaldi af því að félagið tók upp nafnið Ugla á aðalfundi árið 2008. Heimasíðu félagsins hannaði Guðlaugur Kr. Jörundsson en merki félagsins hannaði Gústaf Adolf Bergmann Sigurbjörnsson.
Á fundinn mættu góðir gestir. Steindór Grétar Jónsson framkvæmdastjóri Ungra jafnaðarmanna kynnti málþingið Ég er jafnaðarmaður sem Ungir jafnaðarmenn halda 7. mars. Sveindís Valdimarsdótti bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ ávarpaði einnig fundinn.
Frambjóðendur í prófkjöri Samfylkingarinnar voru margir mættir og héldu nokkrir þeirra erindi. Björgvin G. Sigurðsson, Skúli Thoroddsen, Þóra Þórarinsdóttri, Róbert Marshall, Árni Rúnar Þorvaldsson og Hilmar Kristisnsson héldu stuttar ræður auk þess sem Oddný Harðardóttir sendi fundargestum kveðju sem var lesin á fundinum.
Í lok fundar var fráfarandi stjórnarmönnum, þeim Benóný Harðarsyni, Katrínu Pétursdóttur og  Kristínu Magnúsdóttur, þökkuð vel unnin störf í stjórn Uglu.


Stjórn Uglu skipa nú:

Hjörtur Guðbjartsson, formaður

Ingibjörg Hanna Hallgrímsdóttir, varaformaður

Íris Jónsdóttir Thordersen, ritari

Svavar Grétarsson, gjaldkeir

Sema Erla Serdar, ritstjóri Uglu

Ásta Björk Eiríksdóttir, meðstjórnandi

Guðlaug Finnsdóttir, meðstjórnandi

Heiða Björg Árnadóttir, meðstjórnandi

Hilmar Kristinsson, meðstjórnandi

Róbert Jóhannsson, meðstjórnandi

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024