Bygg
Bygg

Aðsent

Sunnudagur 13. júní 2004 kl. 12:03

Hjálmar svarar Kallinum

Heill og sæll kall  (sem gamall íslenskukennari ætti ég vitanlega að skrifa KARL).
 
Þakka þér hvatninguna í síðasta pistli.  Vissulega hljómar spennandi hugmyndin um akstursbrautina hér á Suðurnesjum.  Var búinn að afla mér upplýsinga um málið. Það virðist standa þannig að fjárfestarnir eru að hugsa sinn gang en virðast hrifnir af aðstæðum.  Kostir okkar eru þeir að hér er allra verða von en hægt að nýta jarðhitann úr Svartsengi til  upphitunar á brautunum.  Sem sagt- kjörinn tilraunavettvangur fyrir dekk og akstur.  Enn eitt dæmið um hvað Ísland hentar vel til tilrauna.  Á þeim forsendum höfum við einmitt náð hingað vetnisverkefninu í samstarfi við stór og öflug alþjóðafyrirtæki.
Ekki er nokkur vafi að við eigum að taka hugmyndinni um akstursbrautina opnum örmum og hygg ég að svo hafi verið gert.  Ákvörðun er hins vegar í höndum fjárfestanna enda um verulegar upphæðir að ræða.  Ljóst er að ef af yrði kæmu mörg störf og velta inn í okkar samfélag.  Og sannarlega þurfum við á því að halda.  Ég hygg reyndar að mjög margt sé í gerjun varðandi atvinnulíf okkar á Suðurnesjum og trúi að á næstu misserum munum við sjá margt athyglisvert gerast hér.  Meginatriðið er að við séum bjartsýn og snúum bökum saman.  Sundurlyndi og úrtölur drepa allt í dróma.
 
Með kveðju,
 
Hjálmar Árnason.
 
 
P.s.  Ósköp þætti mörgum nú skemmtilegra að KALLINN skrifaði góða pistla sína undir nafni.  Yrði umræðan ekki enn opnari og málefnalegri ef allir settu stafi sína undir?
Bílakjarninn
Bílakjarninn