Bygg
Bygg

Aðsent

Hjálmar botnar ekkert í fólki sem vill svör
Þriðjudagur 24. maí 2005 kl. 12:01

Hjálmar botnar ekkert í fólki sem vill svör

Nokkuð hefur verið um greinaskrif eftir að Valgerður Sverrisdóttir hvatti heimamenn sína á norðurlandi til frekari samstöðu um leið og viljayfirlýsing var kunngerð um hugsanlegt álver í Helguvík. Reiði Suðurnesjamanna var greinilega mikil en hún magnaðist svo enn frekar þegar Hjálmar Árnason kom Valgerði til varnar í stað þess að hvetja sitt fólk á Suðurnesjum til samstöðu.

Nú hafa þau bæði ásamt Eysteini Jónssyni svarað þeirri gagnrýni sem sett hefur verið fram á   Framsóknarmenn undanfarna daga. Eysteinn og Hjálmar eiga það sameiginlegt að í skrifum sínum undrast þeir öll þessi læti og fá ekki skilið af hverju þingmaður svæðisins þarf eiginlega að svara fyrir sig. Þeim er   gjörsamlega fyrirmunað að líta í eigin barm og skilja að lætin sköpuðust þegar Suðurnesjamenn fengu nóg af flokkspoti Framsóknarflokksins og reyndu að fá Hjálmar til að skilja að hann þiggur umboð sitt frá Suðurnesjamönnum en ekki skrifstofu Framsóknarflokksins.

Hvað óttast Hjálmar eða hefur hann engu áorkað?
Hjálmar Árnason skrifar orðrétt í grein sinni: “Alveg er ég hættur að botna í sumum mönnum hér suðurfrá”. Rétt er það hjá honum að tengsl hans við svæðið hér suðurfrá hafa dalað mikið. Hann er svona gapandi hissa að menn skulu ekki lengur vera í “Hjálmar á þing”-gírnum sem var blásinn upp á sínum tíma. Undirritaður og fleiri hafa nefnilega að undanförnu óskað opinberlega eftir upplýsingum frá Hjálmari hverju hann hefur áorkað fyrir Suðurnesjamenn öll þau ár sem hann hefur setið í umboði þeirra á Alþingi. Óskað hefur verið eftir upplýsingum um framlög hans til atvinnumála á svæðinu og hann krafinn svara um það hvers vegna hann hjálpaði til við að breiða yfir klaufaleg viðbrögð iðnaðarráðherra vegna fyrirhugaðra stóriðjuframkvæmda í Helguvík.

Með yfirborðskenndri grein sinni reynir Hjálmar svo að beina athyglinni annað og gerir lítið úr tilraunum heimamanna til atvinnuþróunar undanfarin ár. Takið eftir því að Hjálmar hefur engum spurningum um eigin árangur svarað. Hefur hann engu áorkað í öll þessi ár fyrir Suðurnesin eða af hverju forðast hann að telja það upp þegar eftir því er leitað?

Georg Brynjarsson
F.v. formaður Heimis, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ








Bílakjarninn
Bílakjarninn