Bygg
Bygg

Aðsent

Föstudagur 9. apríl 1999 kl. 20:39

HJÁLMAR ÁRNASON VERÐSKULDAR ÞINGSÆTI

Verður er maður verka sinna Ungt fólk sem kosið er á alþingi er oft óskrifað blað. Við kjósendur erum oft litlu nær um hugmyndir, skoðanir þess og afstöðu til ýmissa mála. Ég hafði starfað aðeins með Hjálmari og kynnst honum nokkuð áður en hann „datt“ inn á alþingi í síðustu þingkosningum og vissi aðmaðurinn hafði ákveðnar skoðanir í menntamálum og atvinnumálum kjördæmisins. Þegar á alþingi er komið tekur mikinn tíma að læra á þingið. Hvernig starfar maður? Hvernig getur maður beitt áhrifum sínum í hópi misviturra kjaftaska sem sumir hafa, að því er virðist, áskrift að þingsætum sínum og hafa setið í mörg kjörtímabil. Aðskilja sauðina frá höfrunum Það er á fyrsta kjörtímabilinu sem í ljós kemur hvað í mönnum býr. Annað hvort detta menn niður í meðalmennskuna og hverfa í hópinn og þorri fólks í kjördæminu man ekki hverjir þeir eru. Þeir sjást eða heyrast ekki í 4 ár. Aðrir hasla sér völl með skeleggum skoðunum og yfirgripsmikilli þekkingu á einhverjum málaflokkum þannig að eftir er tekið og eitthvað stendur eftir. Þannig maður er Hjálmar Árnason. Umhverfis- og mengunarmál verða í öndvegi á næstu öld Einmitt í þeim málaflokkum hefur Hjálmar verið sterkastur og skilað mestu. Vinna hans og barátta fyrir notkun nýrra orkugjafa hefur borið sýnilegan árangur. Farartæki sem ganga fyrir vetni og öðrum umhverfisvænum orkugjöfum, samningar við erlend stórfyrirtæki, kynning á störfum íslenskra vísindamanna og íslensku hugviti erlendis. Allt þættir sem standa eftir þó Hjálmar hverfi af alþingi. Það má hins vegar ekki gerast. Miðað við árangur hans á fyrsta kjörtímabili má ætla að 2. kjörtímabilið skili enn meiru. Þá kann hann á alþingi. Látum Hjálmar ekki gjalda samvinnu Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Tryggjum duglegum þingmanni, Hjálmari Árnasyni, sæti á Alþingi með því að kjósa Framsóknarflokkinn í Reykjaneskjördæmi í þingkosningunum í maí n.k. Jón Gröndal
Bílakjarninn
Bílakjarninn