Bygg
Bygg

Aðsent

Mánudagur 6. maí 2002 kl. 08:30

Hjálmar Árnason - fyrir hagsmuni heimamanna

Á síðum dagblaðsins Vísi í dag má lesa aðsent bréf frá Suðurnesjamanni sem styður fast við bakið á Hjálmari Árnassyni, alþingismanni framsóknarflokksins, og segist ásamt öðrum Suðurnesjabúum kvíða því ef satt reynist að Hjálmar hyggist draga í hlé frá stjórnmálum.Í bréfinu kemur m.a. fram að Hjálmar hafi beitt sér fyrir mörgum brýnum hagsmunamálum hér syðra, og má þar nefna, breikkun Reykjanesbrautar, framkvæmdum og frekari uppbyggingu í Helguvík auk stuðningi við Keflavíkurflugvöll ásamt fleiri hagsmunamálum. Það er nokkuð ljóst að ef marka má þessi skrif í DV þá njóti Hjálmar augljóslega stuðnings sinna kjósenda og færi þungur hlekkur okkar Suðurnesjamanna af alþingi reynist það satt að Hjálmar hætti.
Bílakjarninn
Bílakjarninn