Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Herinn fór....
Föstudagur 20. október 2006 kl. 14:43

Herinn fór....

...Og það kom stjórnarliðinu í algjörlega opna skjöldu þrátt fyrir að heimamenn hefðu bent á það frá árinu 2003 með ályktunum frá aðalfundum sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og með beiðnum um fundi með forsætis- og utanríkisráðherrum sem reyndar höfnuðu fundum með stjórn sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum ítrekað á tímabilinu með þeirri afsökun að það hefði engan tilgang.  StjórnSsambands sveitarfélaga á Suðurnesjum ályktaði að nauðsynlegt væri að fara í mótvægisaðgerðir í atvinnumálum þegar herinn færi.  Stjórnarliðar sögðu herinn ekki vera að fara.  Annað kom á daginn. Og enn voru stjórnarliðar stefnu- og úræðalausir og í staðinn fyrir að segja upp varnarsamningnum og fara í nýjar samningaviðræður við Kanann gáfu þeir þeim sjálfdæmi um það með hvaða hætti viðskilnaður þeirra yrði.
Ekki var sæmdin mikill þegar ljóst var hvernig viðskilnaðurinn yrði við þá einstaklinga sem voru að detta inn á eftirlaun.   Þessir einstaklingar voru sendir út á vinnumarkaðinn að leita sér að vinnu á nýjan leik.  Íslendingar mega hreinsa mengun á svæði varnarliðsins á sinn kostnað og fleira í þessum dúr.
Eini ljósi punkturinn er að Kaninn skilaði landi og mannvirkjum í hendur Íslendinga en sennilega klúðra stjórnarliðar tækifærum svæðisins með seinagangi og úrræðaleysi. Því held ég að viturlegra sé að skipta um ríkisstjórn svo hægt sé að fara vinna vel og skipuleggja að nýtingu svæðisins.


Hörður Guðbrandsson frambjóðandi í 3.-4. sæti í prófkjöri Samfylkingar þann 4. nóvember næstkomandi.
www.hordurgudbrandsson.blog.is

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024