Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Þriðjudagur 29. janúar 2002 kl. 14:12

Helstu stefnumál Skúla Thoroddsen

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í eitt af efstu sætum framboðslista Samfylkingarinnar fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Markmiðið með framboði mínu er að taka virkari þátt í mótun samfélagsins til hagsbóta fyrir einstaklinga og fjölskyldur í bæjarfélaginu. Ég hef mikinn áhuga á samþættingu mennta- og atvinnumála sem haldist í hendur við umhverfissjónarmið og félagslegar umbætur.Ég legg áherslu á að stofnanir sem reknar eru af sveitarfélaginu fái aukið sjálfstæði og axli um leið aukna ábyrgð á þeirri þjónustu sem þeim er ætlað að veita. Þannig verði náð fram ýtrustu hagkvæmni í rekstri um leið og þjónusta við íbúana verður betri með minni tilkostnaði. Stofnanir sveitarfélagsins á að reka með þeim hætti að þær njóti þess sem vel er gert.

Ég mun leggja áherslu á félagslegar umbætur þar sem meðal annars eru farnar nýjar leiðir einkarekstrar í þágu fólksins og samfélagsþjónustu.

Það skiptir máli að skapa fleiri störf og auka framleiðni í einkageiranum, því þannig getum við útvegað fé til að bæta og þróa velferðarsamfélagið. Reykjanesbær verður að geta boðið umgjörð um öflugt atvinnulíf þar sem styrkleiki svæðisins, orkan og alþjóðaflugvöllurinn kemur til góða.

Það viðhorf þarf að ríkja í stjórnsýslunni að það sé eðlilegt að verðlauna þann sem setur sér háleitt markmið og nær því. Þetta á bæði við um vímuefnaneytandann sem tekst á við sitt vandamál og skapar sér nýtt og betra líf sem og litla fyrirtækið sem nær árangri í sinni starfsemi. Það er virðingarvert að einstaklingar og fyrirtæki setji sér markmið. Samfélagið þarf á því að halda til að skapa betra mannlíf fyrir alla.

Við eigum að viðurkenna góða frammistöðu í félagsstarfi og íþróttum. Við eigum að hvetja og verðlauna starfsmanninn sem leggur mikið á sig og eldhugana sem skapa ný verkefni í atvinnulífinu og ná árangri.

Skipulags- og umhverfismál í Reykjanesbæ verður að taka föstum tökum. Reykjanesbær verður að geta boðið upp á kjöraðstæður fyrir nýsköpun félags- og atvinnulífs í umhverfisvænu samfélagi sem gerir það eftirsóknarvert að búa hér og starfa. Fyrir því mun ég berjast og óska eftir stuðningi bæjarbúa til þess.

Skúli Thoroddsen,
forstöðumaður Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum


Vefsetur Skúla

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024