Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Helga Jóhanna býður sig fram í 3ja sæti
Mánudagur 14. febrúar 2022 kl. 09:10

Helga Jóhanna býður sig fram í 3ja sæti

Ég býð mig fram í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ fyrir komandi sveitastjórnarkosningar.

Ég er 48 ára, fædd og uppalin í Keflavíkurmegin í Reykjanesbæ og hef búið þar mestan hluta ævi minnar með viðkomu í Þýskalandi, Reykjavík og Garðabæ. Ég er gift Einari Jónssyni sem fæddur og uppalinn er í Njarðvík og eigum við samtals fimm syni og sex barnabörn. Frá janúar 2020 hef ég starfað sem sviðsstjóri rekstrarsviðs HS Veitna hf. og þar áður sem stjórnunarráðgjafi í eigin rekstri í 10 ár.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ég vil leggja mitt af mörkum til að tryggja öflugt og fjölbreytt atvinnulíf í Reykjanesbæ með tilheyrandi lífsgæðum fyrir íbúana. Stuðla að eflingu heilbrigðisþjónustu í heimabyggð með sérstakri áherslu á aukið aðgengi að sérfræðingum á sviði geðheilsu og aukinn stuðningur við, og áhersla á, hlutverk íþrótta og lýðheilsu í lífi barna, ungmenna og fjölskyldna þeirra. Við höfum allt til að bera til að vera það sveitarfélag sem best er að búa í, með öflugri þjónustu við alla aldurshópa, frá vöggu til grafar.

Ég þekki vel til starfsemi og áskorana sveitarfélaga úr fyrri störfum, sem mannauðsstjóri Reykjanesbæjar á árunum 2003-2008, aðalmaður í barnaverndarnefnd í 8 ár og aðalmaður í fræðsluráði í 4 ár. Sem ráðgjafi sveitarfélaga um allt land, bæði á sviði stefnumótunar, mannauðsráðgjafar og þjálfunar stjórnenda. Eins tók ég að mér verkefni á vegum Evrópusambandsins í Kambódíu þar sem áherslan var á eflingu sveitarstjórnarstigsins.

Ég trúi því að reynsla mín og menntun geti nýst sveitarfélaginu vel og hlakka til að stíga mín fyrstu skref í þá átt sem frambjóðandi.

Með ósk um þinn stuðning í 3ja sætið í prófkjörinu þann 26. febrúar nk.

Helga Jóhanna Oddsdóttir