Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Aðsent

Heimsmet í eymd
Föstudagur 3. september 2021 kl. 13:57

Heimsmet í eymd

Á Vesturlöndum hefur fólk kosningarétt og getur valið skýrar línur til hægri eða vinstri. Í sósíalistaríkjum eru líka hreinar línur. Þar er ekki kosið, þess þarf ekki. Þar ráða sérhagsmunir og forréttindastéttir ríkjum. Í þessu ljósi er óskiljanlegt að á Íslandi árið 2021 bjóði fram Sósíalistaflokkur sem á hugmyndafræðilegar rætur sínar að rekja til systurflokka sinna í Hvíta-Rússlandi, Venesúela, Kúbu og Norður-Kóreu. Ríki þar sem stórfelld brot á mannréttindum, matarskortur, efnahagslegur óstöðugleiki og síendurtekin ofbeldisverk, kúgun og fátækt eru daglegt brauð.

Slefa styrjuhrognum

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Gullspæni í kokteilglösum og einkaþotur er lífstílsháttur sem leiðtogi sósíalista á Íslandi kemur með sér inn í Sósíalistaflokkinn. Það er sami lífstíll og lifnaðarháttur forréttindastétta sósíalistaríkjanna í heiminum og leiðtogar sósíalísku ríkjanna búa við. Leiðtogi Sósíalistaflokksins á Íslandi hittir því skoðanabræður sína fyrir þegar þeir setjast á pólitíska rökstóla. Þar slefa þeir styrjuhrognum yfir sérsaumuðu fötin og sötra kampavínið úr gullslegnum kristalglösum. Markmiðið er sameiginleg eymd þegna þeirra.

Kamrar við hvert hús

Leiðtogi sósíalista hefur enga trú á Íslandi sem hann vill gera að fylki í Noregi eða þá Kúbu norðursins. Leiðtoginn kemur ekki að tómum kofanum hjá Raúl Castro eða Nicolas Maduro sem eru sérfræðingar í kúgun samfélaga. Í Venesúela var velmegun en með valdatöku sósíalistanna eru allir innviðir morknir og ónýtir. Þar er allt hrunið með þeim árangri að meira en hálf þjóðin býr við lífskjör undir fátækramörkum og skortir mat og lyf. Þar er eymdin ein eftir. Á Kúbu er þetta enn svakalegra. Þar á varla nokkur maður í sig eða á og nýjustu bílarnir sem seljast almenningi eru frá árinu 1957. Húsnæðis- og heilbrigðismál eru á svipuðum stað og á Íslandi 1940 þegar kamrar voru við öll hús.

Ekki matur eða lyf

Kim Jong Un í Norður-Kóreu gerir út farandverkamenn til að afla þjóðinni gjaldeyris. Sjálfir bera þeir ekkert úr býtum frekar en fjölskyldurnar heima. Þar horfir fólkið á tómar matargeymslur en allar vopnageymslur fullar út úr dyrum. Það þarf vopn til að verja eymdina fyrir hinum frjálsa heimi. Leiðtogi sósíalista á Íslandi getur lært ýmislegt af Kim skoðanabróður sínum um matvælaöryggj sósíalismans. Í Norður-Kóreu er það litla sem til er af mat, lyfjum og víni frátekið fyrir forréttindastéttina. Samskonar forréttindastétt og leiðtogi sósíalista á Íslandi tilheyrði á útrásarárunum.

Hrottaskapur

Alexander Lukashenko í Hvíta-Rússlandi getur svo farið yfir mannlega þáttinn með leiðtoga sósíalista á Íslandi. Þar er nú ekki komið að tómum kofanum í mannlegum hrottaskap en hrottaskapur er kjarninn í mannlegri niðurlægingu sósíalista. Jafnvel þegar menn fara upp í dans með kónum eins og Lukashenko verða menn að láta sig hafa það að beita þeim meðulum sem duga til að kúga alþýðuna.

Það sem sameinar sósíalistana

Minnihlutahópar eiga sér ekki viðreisnar von í löndum sósíalismans. Nöfn yfir hópa hinsegin fólks er ekki til nema í refsikafla laga um dauðarefsingu. Fötluðum er komið fyrir í geymslum eða gripahúsum og samfélagið viðurkennir ekki tilvist þeirra. Ríkisfjölmiðlar landanna eru líklega það eina sem við Íslendingar eigum sameiginlegt með sósíalistaríkjunum. Þar eru eingöngu fluttar einlitar fréttir og bara talað við þá sem eru bestu vinir aðal.

Það er mikilvægt nú fyrir kosningar að fólk geri sér grein fyrir því um hvað sósíalisminn snýst. Einræði, fátækt, frelsisskerðingar, hrottaskapur, hungur og eymd. Árið 2021 stendur kjósendum á Íslandi til boða að kjósa systurflokk sósíalískra flokka sem bjóða upp á allt það sem hér hefur verið sagt frá.

Það er mikil hætta á ferðum ef talsmenn slíkrar mannvonsku komast á Alþingi Íslendinga og kjósendur ættu að hugsa sinn gang því ekkert er til sem heitir diet-sósíalismi.

Ásmundur Friðriksson, alþingismaður.