Bygg
Bygg

Aðsent

Heimdallur vill innanlandsflugið til Keflavíkur
Föstudagur 30. september 2005 kl. 00:42

Heimdallur vill innanlandsflugið til Keflavíkur

Á aðalfundi Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem haldinn var 27. september, var samþykkt stjórnmálaályktun um innanlandsflugið. Fundinn var sá fjölmennasti í sögu félagsins en hann sóttu yfir eitt þúsund ungir sjálfstæðismenn og var ályktunin samþykkt mótatkvæðalaust.

Ályktunin er svo hljóðandi:

Heimdallur telur mikilvægt fyrir framtíðaruppbyggingu og skipulag Reykjavíkurborgar að flugvöllurinn hverfi úr Vatnsmýrinni og starfsemi hans verði flutt til Keflavíkurflugvallar enda verði ferðatími milli flugvallarins og höfuðborgarinnar styttur með viðeigandi framkvæmdum.

Frá þessu er greint á vefnum www.xdreykjanes.is
Bílakjarninn
Bílakjarninn