Heimasíða til stuðnings álveri í Helguvík
Atvinnuleysi vex hröðum skrefum á Suðurnesjum og er mikið áhyggjuefni. Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli var kjölfesta í atvinnumálum svæðisins um áratuga skeið en við brottför þess árið 2006 misstu fjölmargir Suðurnesjamenn góð og trygg störf.
Að undanförnu hafa Víkurfréttir birt einkar fróðlegan greinaflokk eftir Skúla Skúlason um framleiðsluferil áls, notkun þess í daglegu lífi okkar sem og þau fjölþættu tækifæri sem álver skapar á áhrifasvæði sínu með afleiddum störfum og aðkeyptri þjónustu.
Álver í Helguvík mun bæta atvinnuástandið á Suðurnesjum verulega og auka atvinnuöryggi okkar til mikilla muna. Í þeim tilgangi að styðja atvinnuuppbyggingu í Helguvík hefur verið opnuð heimasíða á slóðinni atvinnuskopun.net. Vil ég hvetja þá Suðurnesjamenn sem eru hlynntir álveri í Helguvík að skrá sig á sérstakan lista sem settur hefur verið upp á heimasíðunni og sýna þannig stuðning sinn í verki.