HSS
HSS

Aðsent

Miðvikudagur 16. október 2002 kl. 15:52

Hausthátíð Varnarliðsins á laugardaginn

Árleg hausthátíð varnarliðsins verður haldin á Keflavíkurflugvelli laugardaginn 19. október. Hátíðin er með "karnival" - sniði og fer fram í stóra flugskýlinu næst vatnstanki vallarins frá klukkan ellefu að morgni til þrjú síðdegis. Í boði verður fjölbreytt skemmtun fyrir alla fjölskylduna - lifandi tónlist, þrautir, leikir, matur og hressing og sýningar af ýmsu tagi, og flugvélar og annar búnaður varnarliðsins til sýnis á svæðinu.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Umferð er um Grænáshlið ofan Njarðvíkur. Gestir eru vinsamlega beðnir að hafa ekki með sér hunda.
Bílakjarninn
Bílakjarninn