„Hann kemur hingað og segir ekki neitt af viti, alveg eins og kelling“
„Hann kemur hingað og segir ekki neitt af viti, alveg eins og kelling“ sagði bæjarstjórinn í Garði Ásmundur Friðriksson um Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra á opnum fundi í Stapa sl. fimmtudag. Þessi niðrandi ummæli Ásmundar vekja upp sterkar tilfinningar og gefa ríkt tilefni til að konur láti í sér heyra.
Ég er í senn hissa á að talsmaður míns góða bæjar sýni slíka fordóma gagnvart konum og vitsmunum þeirra en einnig hryggir það mig og ég fyllist skömm og reiði um leið.
Þessi orð lætur Ásmundur falla aðeins nokkrum dögum eftir að þúsundir kvenna um allt land hafa minnt á nauðsyn jafnréttis kynjanna fyrir velferð, atvinnuuppbyggingu, hagvöxt, frið og gott samfélag.
Þarf virkilega að minna Ásmund á það stóra hlutverk sem karlar léku við að koma okkur í þau vandræði sem við glímum nú við og var meðal annars tilefni fundarins í Stapa? Þar hefði kannski farið betur ef fleiri hefðu hagað sér eins og kerlingar.
Mér finnst að Ásmundur eigi að biðja konur opinberlega afsökunar og að sjálfstæðismenn í Garði eigi að sjá til þess að bæjarstjórinn sem starfar á þeirra ábyrgð láti ekki fordóma gagnvart konum byrgja sér sýn.
Talsmenn Suðurnesjamanna verða að sýna ábyrgð í orðum og athöfnum, ekki síst nú þegar kallað er eftir breiðu samstarfi við lausn þess mikla vanda sem við íbúar Suðurnesja búum við.
Oddný G. Harðardóttir
þingkona og formaður fjárlaganefndar.