Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Laugardagur 26. nóvember 2005 kl. 13:19

Hagsmunum æskunnar fórnað í ljótum blekkingaleik

Í gærmorgun fór fram á Alþingi, aðalatkvæðagreiðsla um fjárlög fyrir árið 2006. Þarna eru lagðar línurnar varðandi fjármál ríkisins þar sem löggjafavaldið ákveður með atkvæðagreiðslum hvernig sameiginlegum sjóðum landsmanna skuli varið, öllum íbúum vonandi til hagsbóta. Ekki er annað að heyra á stjórnarliðum en staða ríkissjóðs sé gríðarlega góð og nægir peningar til. Framsóknarmaðurinn Magnús Stefánsson sem er formaður fjárlaganefndar, sagði í upphafi atkvæðagreiðslunnar að staða ríkissjóðs væri sterkari nú en dæmi væru um áður. Hann sagði að tekjuafgangur væri 19,6% eða rétt innan við 2% af landsframleiðslu sem væri meiri afgangur en flestar Evrópuþjóðir gætu státað af.

Góður málstaður
Ein af þeim tillögum sem greidd voru atkvæði um í dag var að veitt skydi 150 milljónum sem notaðar skyldu til að jafna ferðakostnað íþróttafélaga innan lands. Þessi tillaga kom frá þingflokki Vinstri grænna. Hér er um sanngirnismál að ræða, ekki síst fyrir íþróttaiðkendur á landsbyggðinni, og þá ekki síst börn og unglinga. Íþróttafélög úti á landi þurfa að bera þunga krossa til að standa straum af ferðakostnaði. Oftar en ekki bitnar þessi kostnaður einnig á heimilunum, enda vilja foreldrar gjarnan að börn þeirra stundi íþróttir. Það þarf ekki að hafa mörg orð um hvílíkt gildi það hefur, bæði með tilliti til hollustu, þroska og forvarna. Enginn vafi er á að þetta sparar í raun ríkinu stórar fjárhæðir árlega, sem annars hefðu farið í kostnað við heilbrigðisþjónustu.

Nú hefði maður ætlað að þessi tillaga frá Vinstri grænum fengi góðar móttökur allra þingmanna við atkvæðagreiðsluna í morgun. Ekki bara vegna þess að hér er gott mál á ferðinni, heldur líka vegna þess að þingmenn þriggja flokka hafa ítrekað flutt þingsályktunartillögu um þetta efni á undanförnum þingum. Þessi tillaga var síðast rædd á þingi í upphafi þessa mánaðar og hljóðar svo: "Alþingi ályktar að veita árlega af fjárlögum fé í ferðasjóð íþróttafélaga til að standa straum af kostnaði við keppnisferðir þeirra á viðurkennd mót. Úthlutun fari eftir reglum sem menntamálaráðherra setur".

Hjálmar Árnason þingflokksformaður Framsóknar og þingmaður Suðurkjördæmis er fyrsti flutningsmaður. Sér til fulltingis hefur hann félaga sína úr þingflokki Framsóknar þau Magnús Stefánsson (sem einnig er hvorki meira né minna en formaður fjárlaganefndar þingsins), Birki J. Jónsson og Dagnýju Jónsdóttur. Síðan er Kristján L. Möller þingflokksformaður Samfylkingar einnig með á tillögunni. Síðastur en ekki sístur er svo Guðjón Hjörleifsson þingmaður Suðurkjördæmis frá Vestmannaeyjum. Eins og sjá má, er hér ekkert kotungalið á ferðinni, heldur virðulegir og valdamiklir stjórnarþingmenn (nema K. Möller sem er virðulegur en valdalaus stjórnarandstöðuþingmaður). Þingmenn sem í ofanálag geta státað af ýmsum stöðugildum umfram óbreytta þingkarla og konur.

Samþykkt landsfundar
Til viðbótar þessu einvalaliði, má svo nefna að í ályktun nýlokins landsfundar Sjálfstæðisflokksins um var eftirfarandi samþykkt um íþrótta- og tómstundamál: „Landsfundurinn hvetur hið opinbera til að jafna stöðu íþróttaiðkenda vegna ferðakostnaðar með stofnun sérstaks sjóðs. Íþróttahreyfingunni verði falin ráðstöfun þessa sjóðs eftir reglum sem settar verða í samráði við menntamálaráðuneytið.“

Þegar þingsályktunartillagan góða var rædd á Alþingi 3. nóvember síðastliðinn gerðist einmitt sá fáheyrði atburður að Guðjón Hjörleifsson hélt ræðu, og það nokkuð snjalla. Hana má lesa með því að smella hér. http://www.althingi.is/raeda/132/rad20051103T160219.html Umræðurnar í heild sinni má svo lesa með því að smella hér. http://www.althingi.is/altext/132/11/l03153941.sgml Bæði ég og Sigurjón Þórðarson tókum þarna til máls og lýstum fullum stuðningi Frjálslynda flokksins við þetta mál. Við minntum líka á að Frjálsyndi flokkurinn hefur í tvígang flutt frumvarp sem kemur í veg fyrir að yfirvöld geti í framtíðinni féflett íþróttafélög með því að rukka fyrir svokallaðan löggæslukostnað, en einmitt það hefur valdið þungum búsifjum í Vestmannaeyjum.

Tillaga kolfelld
Miðað við þetta allt sem á undan var gengið, þá skyldi maður ætla að Alþingi hefði einróma átt að samþykkta tillögu Vinstri grænna um 150 milljóna ferðajöfnunarsjóð fyrir íþróttafélögin. En mikil varð undrun mín og fleiri í morgun þegar við sáum að einungis 10 þingmenn greiddu tillögunni JÁ. Þetta voru allir þingmenn Frjálslynda flokksins, Vinstri grænna og svo Lúðvík Bergvinsson og Valdimar Friðriksson frá Samfylkingu. Allir viðstaddir þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks greiddu NEI við tillögunni. Þar með talið allir flutningsmenn þingsályktunartillögunnar sem greint er frá hér að framan. Atkvæðagreiðslan fór þannig að tillagan var kolfelld með 27 atkvæðum gegn 10. Tólf þingmenn Samfylkingar greiddu ekki atkvæði og 14 voru fjarstaddir.

Hjálmar Árnason flutningsmaður upphaflegu tillögunnar fór meira að segja í ræðustól og reif kjaft gegn málinu sem þó var hans eigin mál! Ég og Steingrímur J. Sigfússon tókum einnig til máls og lýstum furðu með að ríkisstjórnarliðar felldu með þessum hætti gott mál sem þeir hefðu sjálfir flutt tillögu um. Ég benti á að þetta mál sýndi í raun að ríkisstjórnarflokkarnir meintu ekkert með því að flytja tillögu um að stofna svona ferðasjóð. Hér væri bara á ferðinni lýðskrum og blekkingar til að kasta ryki í augu kjósenda á landsbyggðinni í von um blekkja þá til að greiða stjórnarflokkunum atkvæði sitt.

Lærdómurinn
Svo lengi lærir sem lifir, segir máltækið. Hvað getur þessi litla saga frá í morgun svo kennt okkur? Jú, kjósendur eiga að varast að kjósa á þing fólk sem stundar svona blekkingaleiki þar sem heill barnanna okkar er lagður undir. Fólk sem bröltir um með landsfundasamþykktir og þykjist vera að flytja þingmál til að standa við innantóm loforð úr kosningabaráttunni sem aldrei hefur staðið til að efna. Svona þingmönnum á að refsa í kosningum og það er best gert með því að greiða þeim ekki atkvæði.

EKKI LÁTA PLATA YKKUR!

Með góðri kveðju frá Austurvelli,

Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024