Grafískur hönnuður/umbrotsmaður óskast strax!

Reynsla af ljósmyndun er kostur og íslenskukunnátta er mikill plús.
Viðkomandi starfsmaður mun m.a. vinna við umbrot á blöðum Víkurfrétta ehf. og við hönnun á prentgripum.
Áhugasamir eru hvattir til að senda starfsumsókn með ítarlegum upplýsingum, s.s. um menntun og fyrri störf, til Hilmars Braga Bárðarsonar á tölvupóstfangið: [email protected]
Upplýsingar um starfið eru ekki veittar í síma.
Stefnt er að því að ráða í starfið strax eða mjög fljótlega.
Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Víkurfréttir ehf. reka starfsstöðvar á tveimur stöðum, í Njarðvík og Hafnarfirði. Grafískur hönnuður mun starfa á skrifstofu fyrirtækisins í Njarðvík.