Gleðilegt nýtt framkvæmdar ár og takk fyrir það gamla

Svona til fróðleiks, þá kostar það ríkið um hálfa milljón króna fyrir hvern einstakling að fara í fulla meðferð, því hlítur það að vera mikill sigur ef hver einstaklingur þarf ekki að fara nema eina ferð. Þannig að það mun örugglega hafa gríðarleg áhrif ef það yrði sett á stofn hér aðstaða fyrir eftirfylgni, stuðning og fl, við sjúklinga og aðstandendur þeirra.
Þar sem ég hef aðeins lesið yfir forvarnastefnu Reykjanesbæjar inn á www.rnb.is er t.d þetta að finna þar:
Að auka stuðning við forvarnarstarf fjölskyldu og félagsþjónustu.
Að veita fjölskyldum í vanda aðstoð við að finna úrræði við hæfi.
Að hjálp til sjálfshjálpar sé ávallt höfð að leiðarljósi.
Að koma í veg fyrir neyslu barna og ungmenna á vímuefnum með fyrirbyggjandi aðgerðum.
Og margt, margt fleira gott þar og hvet ég fólk að skoða það sem þar er.
En það sem snýr að þessum stuðningi og uppbyggingu sem ég hef verið að tala um , verð ég því miður ekki var við. Vonandi verður nú eitthvað uppbyggilegt gert í þessu svo grafalvarlega máli sem þetta er á nýju ári. Eins og ég hef áður sagt, að geta hjálpað einum sem hjálpar svo öðrum er góð tilfinning ekki satt?
Erlingur Jónsson.