Reykjanesbær aðventugarðurinn
Reykjanesbær aðventugarðurinn

Aðsent

Glæsilegt prófkjör Samfylkingarinnar
Þriðjudagur 10. mars 2009 kl. 08:30

Glæsilegt prófkjör Samfylkingarinnar

Nú er prófkjörsslagnum hjá Samfylkingunni í Suðurkjördæmi lokið. Baráttan var einkar skemmtileg og drengileg. Það er líka frábært að fá tækifæri til þess að kynnast svo mörgum stórskemmtilegum einstaklingum, bæði í hópi frambjóðenda og kjósenda. Ferðirnar um kjördæmið, þar sem frambjóðendur hittu og ræddu við kjósendur – bæði á vinnustöðum og á förnum vegi – voru sérstaklega ánægjulegar enda fengu frambjóðendur þá að heyra hvaða mál það eru sem helst brenna á fólki. Framboðsfundirnir í Eyjum, Hornafirði, Árborg og Reykjanesbæ voru líka gagnlegir og málefnalegir.
Niðurstaða prófkjörsins er skýr, þótt þátttakan – rúmlega 2300 manns – hefði mátt vera betri. Kannski er áhuginn á stjórnmálum og stjórnmálamönnum ekki meiri eftir þau efnahagslegu áföll, sem dunið hafa á þjóðinni. Flokksstarf gamla fjórflokksins nýtur ekki mikilla vinsælda í kjölfar búsáhaldabyltingarinnar. Upplifun mín af stjórnmálaástandinu í landinu – á ferðum mínum um kjördæmið – var sú að trúnaðarbrestur væri á milli almennings og stjórnmálamanna.  Traust almennings í garð stjórnmálamanna er í algjöru lágmarki og krafan um breytingar og breytta stjórnarhætti var mjög skýr og hávær hvert sem farið var. Eitt stærsta verkefni verðandi þingmanna – þessa kjördæmis sem annarra – verður að endurreisa traust og trúverðugleika Alþingis.
Þakkir fyrir stuðninginn

Þrátt fyrir hafa ekki náð þeim árangri, sem að var stefnt í prófkjörinu, er ég ákaflega ánægður og þakklátur fyrir þann breiða stuðning sem ég fékk. Þeim frambjóðendum sem náðu bindandi kosningu óska ég innilega til hamingju með árangurinn - svo og öllum frambjóðendum fyrir skemmtilega og heiðarlega baráttu. Einnig vil ég þakka þeim fjölda einstaklinga, sem störfuðu að framkvæmd prófkjörsins – kjörstjórn og umboðsmönnum út um allt kjördæmið á vegum flokkfélaganna. Án þeirra hefði þetta aldrei gengið svo vel sem raun bar vitni – og afraksturinn af vinnu þeirra og frambjóðenda er öflugur og sigurstranglegur framboðslisti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.
En síðast en ekki síst er ég þakklátur þeim einstaklingum, sem lögðu lykkju á leið sína til þess að styðja við bakið á mér í prófkjörinu og treystu mér þannig til góðra verka. Slíkur stuðningur er ómetanlegur. Kærar þakkir!

Árni Rúnar Þorvaldsson
Jafnaðarmaður og formaður bæjarráðs Hornafjarðar

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
VF jól 25
VF jól 25