Gjöf til Minjafélags Vatnsleysustrandar
Á dögunum var Minjafélagi Vatnsleysustrandar færð höfðingleg gjöf frá erfingjum Guðríðar Sveinsdóttur frá Hábæ í Vogum og manns hennar Stefáns Ingimundarsonar frá Litlabæ á Vatnsleysuströnd en þau bjuggu lengi í Hábæ. Sólborg og Nikulás Sveinsbörn og erfingjar Guðríðar og Þuríðar systra þeirra afhentu stjórn minjafélagsins y´msa muni úr verslunarrekstri fjölskyldunnar í Hábæ í Vogum, ásamt nokkrum skjölum og skilríkjum. Gjöfinni fylgdi að auki peningaupphæð frá gefendunum og Reykjaprenti ehf., „til þess að sy´na stuðning við hin þy´ðingarmiklu verkefni minjafélagsins” eins og segir í bréfi sem fylgdi gjöfinni.
Í nefndu bréfi segir einnig að Sveinn Pálsson, faðir Guðríðar, hafi sett á stofn verslun í Hábæ rétt upp úr 1930, og mun það vera fyrsta verslunin í Vogum. Í fyrstu var verslunin rekin í ny´jum norðurhluta Hábæjar (nú Tjarnargötu 3, í því herbergi, þar sem nú er eldhús). Á árunum 1951-1952 var fjósi og hlöðu norðan við Hábæ breytt í verslunarhúsnæði á 1. hæð og íbúð á 2. hæð, og var verslunin þá flutt þangað. Þetta hús er nú Tjarnargata 1. Það sem eftir er af búðarhillum frá rekstri verslunarinnar á þessum tíma, er nú varðveitt og notað sem hillur í stofu íbúðarinnar á neðri hæð Tjarnargötu 1. Í þessu húsnæði var verslunin svo rekin til ársins 1968. Frá árinu 1958 ráku þeir verslunina í félagi Sveinn og Stefán Ingimundarson tengdasonur hans, og hinn 1. janúar 1966 seldi Sveinn Stefáni hluta sinn í versluninni, svo að Stefán varð einn eigandi verslunarinnar.
Rak hann verslunina til dauðadags (1975) ásamt Guðríði konu sinni, en eftir það rak Guðríður verslunina þar til hún seldi hana Guðmundi Sigurðssyni á árinu 1976. Síðustu árin var verslunin rekin í Vogagerði 8 (frá 1968), en það hús höfðu þau Stefán og Guðríður reist sér. Það er Minjafélagi Vatnsleysustrandar afar mikilvægt að eiga að velunnara eins og Hábæjarfólkið. Á undanförnum árum hafa fleiri slíkir stutt störf félagsins með gjöfum og jákvæðu viðhorfi. Engin formleg félagasamtök höfðu fyrir stofnun Minjafélags Vatnsleysustrandar verið starfandi í sveitarfélaginu Vogum, og haft það að markmiði að varðveita minjar og sögu þess. Varðveislan hefur verið í höndum einstaklinga. Hörður Einarsson sem fór fyrir Hábæjarfólkinu hefur meðal annars gert upp þrjú gömul hús í Vogum á undanförnum árum.Bænum til mikils sóma.
Eitt þessara húsa er Hábær. Starf minjafélagsins sny´st um að varðveita minjar og sögu sveitarfélagsins, komandi kynslóðum til ánægju og lærdóms. Frá stofnun árið 2005 hefur stjórn félagsins unnið hörðum höndum að því að bjarga y´msum gömlum munum frá glötun ásamt því að miðla til almennings sögulegum staðreyndum og halda á lofti gildi starfs af þessu tagi. Markmið starfs minjafélagsins mun alltaf vera að miðla sögunni til almennings og varðveita, komandi kynslóðum til fróðleiks. Eða eins og svo vel er að orði komist í fyrrnefndu bréfi „ svo að í framtíðinni megi liggja fyrir sem raunsönnust mynd af lífi, starfi og högum íbúa fyrri tíðar í Vogum og á Vatnsleysuströnd “
Minjafélag Vatnsleysustrandar færir Hábæjarfólkinu bestu þakkir fyrir velvild í garð félagsins og góðan hug til komandi kynslóða í Vogum.
Fyrir hönd stjórnar Minjafélags Vatnsleysustrandar
Helga Ragnarsdóttir