Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Gígja býður sig fram í 4. sæti
Föstudagur 4. febrúar 2022 kl. 11:40

Gígja býður sig fram í 4. sæti

Ég hef ákveðið að bjóða mig fram í 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ sem fer fram 26. febrúar næstkomandi. Með því að bjóða mig fram til þátttöku vil ég leggja mitt af mörkum til að skapa samfélag þar sem er gott að búa, lifandi bæ þar sem fjölskyldufólk er sett í forgang og menningar- og íþróttalífið blómstrar.

Ég er 32 ára gömul, uppeldis- og menntunarfræðingur að mennt og starfa sem flugfreyja hjá Ice­landair, ásamt því að deila mataruppskriftum á vef Gott í matinn. Ég er gift Ásgeiri Elvari Garðarssyni og við eigum tvö börn á leikskólaaldri. Ég hef fylgst vel með bæjarmálunum í Reykjanesbæ frá því ég flutti hingað fyrir meira en áratug og var á lista Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarkosningunum árið 2014. Ég hef tekið virkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins, sat  í stjórn Heimis, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ um tíma og var í 10. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir síðustu alþingiskosningar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Reykjanesbær er ört vaxandi bæjarfélag með stórkostleg tækifæri til þess að verða framúrskarandi á öllum sviðum. Til þess þarf margt að fara saman - ímynd samfélagsins og rekstrarumhverfið í bænum þarf að vera aðlaðandi. Sem móðir tveggja barna á leikskólaaldri þekki ég vel raunveruleika ungs fjölskyldufólks og mun leggja mikla áherslu á málefni fjölskyldunnar, leikskólamál og betri heilsugæslu. Eflingu heilsugæslunnar þarf að setja í forgang í samstarfi ríkis og sveitarfélagsins, þar sem þjónustan við íbúana verði útgangspunkturinn og miðuð að okkar þörfum. Ég vil að í Reykjanesbæ verði hægt að tryggja börnum öruggt pláss í dagvistun að loknu fæðingarorlofi og að settir verði á fót ungbarnaleikskólar í bæjarfélaginu. 

Hér er gott að vera og hér vil ég búa. Ég nýt þess að takast á við áskoranir og ég er sannfærð um að ég hafi margt til málanna að leggja til að gera Reykjanesbæ að enn betri bæ til að búa í. 

Til þess þarf ég ykkar aðstoð og samstarf kæru íbúar – ég óska eftir ykkar stuðningi í 4. sæti.

Gígja S. Guðjónsdóttir.