Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Gerum betur
Sunnudagur 15. október 2017 kl. 07:00

Gerum betur

Við erum öll með á nótum þegar spurt er í hvaða málaflokkum umbætur eru næstar og brýnastar í samfélaginu, bæði á landinu öllu og á Suðurnesjum. Menn t.d. án mikillar umhugsunar: Heilbrigðismál, kjör aldraðra og öryrkja, húsnæðismál, samgöngur og úrbætur í menntamálum. Fleira kemur til í máli manna svo sem umhverfis- og loftslagsmál, helstu atvinnugreinar og stjórnarskráin. Stöðvun heilsuspillandi mengunar frá orkufrekum iðnaði í Helguvík er þar lykilatriði. Með öllum tiltækum ráðum. Við í VG stöndum að baki íbúum í Reykjanesbæ sem vilja búa við eðlilegt umhverfi.

Ólík hugmyndafræði
Þegar rætt er um hvernig skuli standa að umbótum í því góðæri, sem hefur smám saman orðið að veruleika eftir efnahagshrunið, eru ólíkar lausnir á lofti. Einnig hvar og hvernig finna skuli fjármagna þær. Pólitík er að stórum hluta grunduð á ólíkri afstöðu okkar til þess hvernig samfélagið á að þróast. Við byggjum afstöðuna á lífsviðhorfum og hugmyndafræði. Nú hafa orðið til fleiri stjórnmálahreyfingar á Íslandi en nokkru sinni. Það tel ég stafa af uppbroti í samfélaginu við efnahagshrunið. Alþjóðleg efnahagsmál, opnun milli landa, afdrifarík hlýnun, ófriður víða og óöryggi fólks koma líka við sögu, þrátt fyrir aukna velmegun að meðaltali hér heima, sem um leið einkennist af vaxandi ójöfnuði og óþoli. Fátækt er staðreynd á Íslandi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Sumir eru vel aflögu færir, aðrir ekki
Vinstri hreyfingin - grænt framboð boðar umbætur til næstu fjögurra ára og svarar þannig ákalli mikils meirihluta þjóðarinnar. Við teljum gerlegt að mynda félagshyggjustjórn sem fetar aðrar og betri leiðir en tvær síðustu ríkisstjórnir. Lykilatriði er að afla ríki og sveitarfélögum tekna hjá þeim sem sannarlega eru aflögu færir, hlífa öðrum þegnum, færa fjármuni til þeirra og líka til margvíslegra umbóta sem kallað er eftir en ekki stóð til að framkvæma samkvæmt fjármálastefnu síðustu ára. Í tveimur af tíu efstu tekjuflokkum landsmanna eru meðalárslaun 11 til 18 milljónir kr. Það eru 54.8% allra tekna á landinu. Til samanburðar eru meðalárstekjur í neðsta flokki 318 þúsund kr.

Í efsta flokki eru 20.860 einstaklingar með alls 339 milljarða í árstekjur. Aflögufært fólk? Fjármagnstekjur hafa verið um 95 til 100 milljarðar kr. á ári. Nálægt helmingur af þeim falla í hlut 1-2% fjármagnseigenda. Aflögufært fólk? Og enn fremur: Bankar og stór fyrirtæki eru flest afar vel haldin. Aflögufær?
Umbætur næstu fjögur ár útheimta þor, yfirvegun, sanngirni og stöðugleika. Um leið má bæta eitt og annað í ríkisrekstrinum. VG er í stakk búið til að leiða nauðsynlega vinnu til úrbóta undir traustri forystu Katrínar Jakobsdóttur, í samvinnu við þá sem ná saman um samfélagslegar lausnir í áföngum.

Ari Trausti Guðmundsson,
1. sæti á lista VG í Suðurkjördæmi