Georg Brynjarsson endurkjörinn formaður Heimis
Aðalfundur Félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ var haldinn 31. október í Sjálfstæðishúsinu í Njarðvík. Sérstakur heiðursgestur var Guðjón Hjörleifsson, alþingismaður. Georg Brynjarsson var endurkjörinn formaður félagsins. Í stjórn félagsins voru kjörin þau Árni Árnason, Rúnar Sigurvinsson, Hildur Bæringsdóttir, Björgvin Árnason og Andri Örn Víðisson. Í varastjórn voru kjörin þau Pétur Örn Helgason, Kristján Pétur Kristjánsson, Erla María Andrésdóttir, Haukur Skúlason og Sigurjón Arnarsson.