HSS
HSS

Aðsent

Garðbúar og áhugasamir athugið: Segjum nei við sameiningu Tónlistarskólans í Garði við Gerðaskóla!
Fimmtudagur 16. júní 2011 kl. 23:00

Garðbúar og áhugasamir athugið: Segjum nei við sameiningu Tónlistarskólans í Garði við Gerðaskóla!

Starf Tónlistarskólans í Garði á undir högg að sækja ef við bregðumst ekki við!
Skólinn var stofnaður af áhugasömum íbúum með hugsjón að leiðarljósi fyrir rúmum 30 árum og hefur verið vel sinnt af þeim sem að honum standa, starfsfólki og foreldrum. Nú er fyrirhuguð sú breyting að sameina Tónlistarskólann við Gerðaskóla undir einum stjórnanda. Breytingin hefur það m.a. í för með sér að stjórnendum skólanna verður sagt upp störfum og eiga herlegheitin að ganga í gegn þann 1. júlí nk.


Margt er gagnrýnivert í þessu breytingarferli fyrir utan það hversu stuttur fyrirvari er gefinn. Engin umræða hafði farið fram áður en ákvörðunin var tekin í bæjarstjórn 8. Júní síðstliðinn. Hvorki skólastjórnendur, kennarar, nemendur eða foreldrar höfðu heyrt af slíkum fyrirætlunum. Skólanefnd Garðs hafði ekki fjallað um málið áður en það var tekið fyrir í bæjarstjórn eins og lög gera ráð fyrir. Eins er vitnað til álitsgjafa í umfjöllun um málið en þó liggja litlar upplýsingar á borðinu fyrir íbúa og engin áætlun um framkvæmd breytingarinnar hefur verið lögð fram. Viðbrögð starfsfólks, íbúa og foreldra nemenda segja til um það að komið er aftan að þeim með þessa stóru breytingu en farsælla hefði verið að opna umræðu um málið og gefa fleirum tækifæri til þess að koma að því.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Tónlistarskólinn hefur skipað stóran sess í menningarlífi bæjarins síðastliðin ár og íbúar Garðs notið góðs af því öfluga starfi. Bærinn státar m.a. af afbragðs tónlistarmönnum sem hafa gert Garðinn frægan eftir nám í skólanum. Nú á að gera skólann að deild innan Gerðaskóla án þess að málið sé skoðað vandlega og í samráði við hlutaðeigandi aðila. Sem foreldri barna í Tónlistarskóla Garðs og áhugakona um tónlist og menningarlíf sé ég mig knúna til þess að vekja athygli á málinu.


Særún Ástþórsdóttir


Ég hvet samborgara mína til þess að bregðast við með eftirfarandi hætti:

Sértu ósátt/ur við hugmynd og framkvæmd sameiningar Tónlistarskólans í Garði við Gerðaskóla bið ég þig að senda bæjarfulltrúum Garðs eftirfarandi skilaboð á netföng þeirra sem birt eru hér fyrir neðan. Allir sem láta sig málefni tónlistarmenntunar varða eru hvattir til þess að senda þennan póst, íbúar Garðs sem og aðrir.

Efni: Áskorun til bæjarstjórnar Garðs

Kæra bæjarstjórn Garð. Þessi póstur er áskorun til bæjarstjórnar Garðs um að hætta við eða fresta sameiningu Tónlistarskóla Garðs við Gerðaskóla og boða til íbúafundar um málið. Þannig má skapa lýðræðislega umræðu og gefa íbúum og þeim sem koma að málinu tækifæri til þess að kynna sér það nánar.


Netföng bæjarfulltrúa Garðs:

Einar Jón Pálsson, [email protected]

Brynja Kristjánsdóttir, [email protected]

Gísli Heiðarsson, [email protected]

Kolfinna S. Magnúsdóttir, [email protected]

Benedikt G. Jónsson

Jónína Holm,  [email protected]

Davíð Ásgeirsson, [email protected]