Fyrsta alþjóðlega gagnaverssvæðið í heiminum sem að fullu er knúið áfram af grænni orku
Fjögurra ára barátta skilar árangri
Ég hef verið svo heppinn að fá að styðja við verkefni Verne Global allt frá því áhugi þeirra kom fyrst fram hér fyrir fjórum árum, áhugi á að færa rafræna gagnaveraiðnaðinn til Íslands. Þetta hefur verið hörð barátta og ég dáist að forsvarsmönnum Verne Global fyrir þá þrautseigju sem þeir hafa sýnt – að gefast ekki upp fyrir alþjóðlegu efnahagshruni og mörgum skriffinnsku hindrunum.
En á þessum tíma hafa bæði sveitarfélag, íslensk stjórnvöld og evrópskir eftirlitsaðilar samhæft sig og hér bjóðast samkeppnishæf og kostum hlaðin tilboð til þeirra erlendu aðila sem vilja setja upp gagnaversþjónustu hér á landi eða kaupa þjónustu þeirra.
Reykjanesbær heimili stærsta gagnaverssvæðis á landinu
Nú hafa gagnaeiningarnar frá Colt fyrirtækinu, breska, verið settar í gang að Ásbrú og alþjóðleg fyrirtæki eru farin að kaupa aðgang.
Frá og með þessari stundu er Reykjanesbær ekki aðeins heimili stærsta starfandi gagnaverssvæðis á landinu heldur er hér um að ræða fyrsta alþjóðlega gagnaverssvæðið í heiminum sem er knúið 100% með vistvænni orku.
Hentug staðsetning
Staðsetning á Íslandi á milli Evrópu og Norður-Ameríku þykir örugg og kjörin. Við vitum að það skiptir einnig máli að hér er alþjóðleg höfn í Helguvík aðeins í 10 mínútna akstursfjarlægð frá gagnaverssvæðinu og alþjóðaflugvöllur í sömu fjarlægð. Flutningur milli heimsálfa á búnaði eða fólki er því eins auðveldur og hægt er. Vistæn orka kemur af landsnetinu frá Landsvirkjun. Þá skiptir máli að hér býðst nú samhent svörun við umleitunum eftir gagnaversþjónustu undir forystu Íslandsstofu.
Verne Global er samfélagslega ábyrgt fyrirtæki
Við forsvarsmenn Reykjanesbæjar erum mjög stolt af samstarfi við forsvarsmenn Verne Global. Hér eru menn sem hafa ítrekað sýnt samfélagslegan áhuga og ábyrgð. Það hefur verið mjög ánægjulegt að eiga samstarf við stjórnunarteymið, þau Jeff Monroe, forstjóra, Tate Cantrell, tæknistjóra, Isaac Kato, fjármálastjóra og aðstoðarforstjóra og Lisu Rhodes, yfirmann markaðs- og sölumála. Og ég hlakka til frekara samstarfs og þróun tækifæra sem byggja á gagnaverinu.
Ný tækifæri fyrir ungt fólk – tæknimenntun- vel launuð störf
Auk umtalsverðra tekna sem bæjarfélagið hlýtur af fasteignagjöldum og útsvarstekjum nýrra starfa, veit ég að úr tiltölulega einhæfu atvinnulífi – sem hefur í gegnum tíðina verið byggt upp á þjónustu við alþjóðaflugvöll og fiskvinnslu – eru hér að skapast ný tækifæri til menntunar og starfa fyrir ungt fólk. Ég veit að við getum treyst á stuðning Verne til að vinna með okkur að þróun menntunar á tæknisviðum en til þess er Keilir, miðstöð vísinda og fræða og atvinnulífs einmitt stofnað – að vera menntunarleg svörun við þeim atvinnutækifærum sem við þróum hér á svæðinu.
Stuðningur við náttúru og íþróttir
Og Verne hefur þegar lagt góðum málum lið. Nú nýverið hefur fyrirtækið lagt fram stuðning til körfuboltadeildar Keflavíkur – og við formlega opnun alþjóðlega gagnaversins sem fór fram í Víkingaheimum, tókum við einnig á móti merkilegri gjöf frá Verne. Það eru 50 mannhæðarhá tré – sem verða gróðursett hér á svæðinu í vor.
Það er að birta, eins og ég hef ítrekað sagt. Alþjóðlega gagnaverið á Ásbrú er fyrsta merkið, Kísilver í Helguvík og Stolt-fiskeldisverkefnið á Reykjanesi verða næstu merki á vormánuðum! Vonandi fylgja góð tíðindi vegna álvers í Helguvík í sumar.
Árni Sigfússon,
bæjarstjóri