Fyrirspurn til frambjóðenda, allra stjórnmálaflokka í Suðurkjördæmi
Fyrst og fremst er þessu beint til þeirra, sem stefna á efstu sætin á hverjun lista og þar með setu á Alþingi eftir komandi kosningar í vor.
Undirritaðir vænta skýrra svara við því hvaða skoðun hver og einn frambjóðandi hefur á þjóðlendulögunum og þeim málatilbúnaði, sem af þeim hefur leitt. Nú liggur fyrir að þinglýstar eignir hafa verið dæmdar eign íslenska ríkisins, þó þær hafi sannanlega komist í eigu núverandi eigenda með fullkomlega löglegum hætti og jafnvel verið keyptar af ríkinu sjálfu fyrir ekki svo löngu síðan.
Vænst er skýrra svara á sama vettvangi og þessi fyrirspurn birtist. Svari einhverjir ekki verða undirritaðir að reikna með að þeir hinir sömu séu sáttir við framgang málsins.
Jóhannes Kristjánsson, Höfðabrekku
Þórir N. Kjartansson, Vík
Örn Bergsson, Hofi