Fundur um atvinnumál kvenna á Suðurnesjum
Opinn fundur um Atvinnumál Kvenna á Suðurnesjum, í sal Sálarrannsóknafélags Suðurnesja, Víkurbraut 13, Keflavík, í kvöld 10. febrúar kl: 20
Frummælendur eru þau Linda Ásgrímsdóttir frá Vinnumálastofnun, Hjörtur Guðbjartsson í Atvinnu- og hafnamálaráði Reykjanesbæjar og Björk Guðjónsdóttir, verkefnastjóri Vaxtarsamnings Suðurnesja.
Á fundinum verða einnig bæjarfulltrúar XS í Reykjanesbæ, ásamt Oddnýju Harðardóttur þingmanni og fleirum.
Umræðufundur til upplýsinga um hvernig Atvinnumál Kvenna standa á Suðurnesjum.
Kona - láttu sjá þig!
Þúsund þakkir,
Kvennahreyfing Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ