HSS
HSS

Aðsent

Fullyrðing um að Fasteign hf sé „okkar félag” er röng
Þriðjudagur 23. maí 2006 kl. 22:11

Fullyrðing um að Fasteign hf sé „okkar félag” er röng

Mikið hefur verið talað um þá staðreynd að Reykjanesbær hefur eitt sveitarfélaga á Íslandi selt nánast allar sínar fasteignir inn í fasteignafélagið Fasteign og endurleigt til 30 ára án þess að nokkur eignarréttur skapist. Fullyrðing D-listans og bæjarstjórans um að þetta sé fasteignafélagið okkar er röng og stenst ekki við nánari skoðun.

Í fyrsta lagi eigum við 34% í félaginu á meðan helmingurinn (50%) af tekjum félagsins koma frá okkur, verulegt misvægi þarna sem aðrir eigendur, sérstaklega Glitnir og önnur sveitarfélög, hagnast verulega á en félagið er algjörlega fjármagnað af Glitni. Þannig hagnast aðrir eigendur Fasteignar hf á háum leigugreiðslum og vægast sagt slæmum samningum Reykjanesbæjar við Fasteign hf.

Fasteign skuldar 10,4 milljarða - skuldar Reykjanesbær þá lika?
Í öðru lagi veit ég ekki til þess að Fasteign hf hafi boðið út sínar lántökur, á hvaða kjörum er Fasteign hf hjá sínum lánadrottnum? Hafa fjármálafyrirtæki á Íslandi fengið tækifæri til að bjóða í lántökur Fasteignar? Fasteign skuldar 10,4 milljarða króna og ef þetta er fasteignafélagið okkar skuldum við þá þessa peninga? Ekki er það skráð í ársreikningum Reykjanesbæjar!
Í þriðja lagi, ávöxtunarkrafa Fasteignar hf er u.þ.b. 6% á þau verkefni sem Fasteign tekur þátt í, sem endurspeglast í gríðarlegri hárri leigu sem aðrir hagnast á. Þannig hafa aðrir eigendur Fasteignar og fjármögnunaraðilar komið sínum peningum í góða og trausta ávöxtun og þurfa ekki að keppa við aðra um að lána Reykjanesbæ í gegnum Fasteign hf og geta í raun ákveðið þau kjör sem Fasteign fær. Fjármögnun Fasteignar er sem sagt ekki boðin út og það endurspeglast í slæmum leigukjörum Reykjanesbæjar. Allir þeir sem skulda húsnæðislán vita hvað munar miklu á því að borga af láni sem ber 4,1 % vexti samanborið við lán sem ber 6 % vexti.

Er Fasteign besta fasteignafélagið á markaðnum?
Í fjórða lagi, hver segir að Fasteign sé besta fasteignafélagið á markaðnum? Hvernig vitum við fyrir víst hvort önnur fasteignafélög myndu hugsanlega bjóða betri kjör eða gera hlutina betur fyrir minna verð? Fasteign fær öll verkefni á vegum Reykjanesbæjar upp í hendurnar og þarf ekki að keppa um verkefnin við aðra. Þetta er háalvarlegt mál og algjörlega ábyrgðarlaust af kjörnum fulltrúum almennings að haga sér svona með skattfé íbúa Reykjanesbæjar. Verkefni eru aldrei boðin út, heldur afhent Fasteign án þess að veita öðrum fasteignafélögum möguleika á að bjóða betur hvað varðar byggingarkostnað og leigukjör.

Kjörin hjá Fasteign eru mjög slæm - reiknaðu það út á xa.is
Í fimmta lagi eru kjör Fasteignar afar slæm og sýnir það sig best með því að ef ég myndi ætla að leigja 25 milljón króna hús af Fasteign myndi ég þurfa að greiða 173 þúsund á mánuði, auk þess þyrfti ég að sjá um nær allar tryggingar og fasteignagjöld. Þá þyrfti ég að sjá um allt viðhald fyrir utan sjálfa skelina sem nær ekki nema nokkra cm inn í vegginn. Allar lagnir og öll kerfi í húsinu eru því á minn kostnað. Fasteign kæmi reyndar og málaði fyrir mig á nokkra ára fresti.
Ef þú vilt vita hvað þú myndir þurfa að greiða af þínu húsi ef þú leigðir það á sömu kjörum og Reykjanesbær leigir af Fasteign þá skalt þú fara inn á xa.is og reikna það út í fasteignaleigureiknivél sem þar er að finna.

A-listinn mun setja 180 milljónir á ári í aukna þjónustu
Það hefur sýnt sig að sala allra eigna Reykjanesbæjar var röng ákvörðun á sínum tíma, þessi mistök mun A-listinn leiðrétta. Með endurkaupum á öllum fasteignum bæjarins mun A-listinn auka ráðstöfunartekjur um 180 milljónir á ári, sem verja á til aukinnar þjónustu við íbúanna. Í þessum útreikningum A-listans er tekið tillit til alls m.a.til arðgreiðslna Reykjanesbæjar af eignarhlut sínum í Fasteign. Eftir 30 ár mun síðan sveitarfélagið eiga þessar eignir í stað þess að þurfa að leigja þær áfram.

Eysteinn Jónsson skipar 2. sætið á A-listanum
Bílakjarninn
Bílakjarninn