Fulltrúi minnihlutans var ekki boðaður á jafnréttisnefndarfund í Garði
Fulltrúi minnihlutans í jafnréttisnefnd Sveitarfélagsins Garðs var ekki boðaður á fyrsta fund nefndarinnar sem haldinn var þann 6. september sl. Ágústa Ásgeirsdóttir, sem á sæti í nefndinni fyrir minnihlutann, sagði við Víkurfréttir að hún ætli að bóka um málið á næsta fundi jafnréttisnefndar og óska skýringa á því hvers vegna fulltrúi minnihlutans var ekki boðaður með formlegum hætti til fundarins.
Í fundargerð jafnréttisnefndar var tekið sérstaklega fram að hvorki hafi mætt aðalfulltrúi né varamaður hans á síðasta fund nefndarinnar. Aðeins hafi mætt þau Erna M. Sveinbjarnardóttir og Miroslaw Stanislaw Zarski.
Á jafnréttisfundinum, sem minnihlutinn missti af, voru afhentar möppur með ýmsum gögnum sem gætu komið nefndinni að notum m.a. lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Farið var yfir 10. grein þeirra laga þar sem kveðið er á um hlutverk jafnréttisnefnda. Þar kemur m.a. fram að jafnréttisnefndir hafi umsagnarrétt eða umsjón með gerð jafnréttisáætlunar fyrir sveitarstjórn til fjögurra ára í senn. Þær skulu lagðar fram ekki seinna en ári eftir sveitarstjórnarkosningar. Hvort fulltrúi minnihlutans fái möppuna í pósti eða bara á næsta fundi á eftir að koma í ljós.